Monthly Archive for maí, 2010

Heimsóknir í Geirahús

Núna stendur yfir unaðsleg sýning á verkum alþýðulistamannsins Ásgeirs Emilssonar. Skaftfell hefur rekið lítið safn um hann allt frá því hann lést árið 1999. Geirahús er til sýnis fyrir gesti og gangandi, heimsóknin tekur um 30 mínútur og er farin í fylgd einhvers af starfsmönnum Skaftfells.

Aðgangseyrir er 500 krónur og hámarksstærð hópa er 5 manns.

Til að heimsækja Geirahús þarf að panta tíma á skrifstofu Skaftfells, í síma 472 1632 eða með tölvupósti skaftfell@skaftfell.is.

Skaftfell geirahus 250x166 Heimsóknir í Geirahús

Auglýst eftir umsóknum um vinnustofudvöl með kknord styrk

Skaftfell hefur hlotið styrk frá kknord til að bjóða nokkrum listamönnum frá Norðulöndunum eða Eystrasaltinu til dvalar í nokkra mánuði. Sómahjónin Hanna Christel Sigurkarlsdóttir og Elvar Már Kjartansson hafa verið svo elskuleg að lána Skaftfelli húsið sitt á Fossgötu undir þessa listamenn. Nú erum við að kalla eftir umsóknum og má finna allar upplýsingarnar á heimasíðunni. Þeim hjá kknord hugnast ekki að listamennirnir séu af sama þjóðerni og sjálf miðstöðin svo íslenskir listamenn koma vart til greina, nema þá að þeir séu með lögheimili á einhverju hinna norðurlandanna eða við Eystrasaltið. Þeir sem þetta lesa meiga hinsvegar gjarnan koma þessum upplýsingum áleiðis til skandinaviskra kollega sinna sem eru spennandi listamenn og gott fólk!

Umsóknarfresturinn rennur út 20. júní.

Geiri - opnun laugardaginn 15. maí kl. 16:00

Það er okkur sannur heiður að kynna sýningu á verkum alþýðulistamannsins Ásgeirs Emilssonar.

Alþýðulistamaðurinn Ásgeir Jón Emilsson var fæddur 1931 að Hátúni við Seyðisfjörð. Geiri, eins og hann var ávallt kallaður, var litríkur karakter og listamaður af Guðs náð. Hann hafði óstöðvandi sköpunarþörf og verk hans bera merki um natni og listfengi. Þrívíð verk úr dósum, rammar úr sígarettupökkum, málverk með síendurteknum mótífum og mikill fjöldi ljósmynda, sem bera merki um óvenjulegt sjónarhorn listamannsins, eru burðarásinn í ævistarfi Geira. Sýningin í Skaftfelli varpar ljósi á óvenjulegan listamann og opnar gestum glugga inn í einstakan hugarheim Ásgeirs Emilssonar.

Í tilefni sýningarinnar hefur einnig verið gefið út fallegt rit um Geira, líf hans og list. Bókin verður til sölu í safnverslun Skaftfells frá og með opnunardegi sýningarinnar. Bókin verður seld í forsölu á lægra verði fram til föstudagsins 14. maí. Árný Bergsdóttir tekur á móti pöntunum í síma 866 1209 eða með tölvupósti á arny@sfk.is.

Sama dag verður opið hús í Geirahúsi frá 15:00 – 18:00.

Sýningin stendur til 30. júní.
Opið alla daga frá 12:00 – 22:00 og aðgangur ókeypis.

Heimsóknir í Geirahús þarf að panta með fyrirvara á skrifstofu Skaftfells í s. 472 1632 eða með tölvupósti á skaftfell@skaftfell.is. Hámarksstærð hópa er 5 manns og aðganseyrir er 500 kr. á hvern gest.