Monthly Archive for september, 2010

Leiguhúsnæði fyrir listamenn

Norskt timburhús með sögu, sál og sharma í miðbæ Seyðisfjarðar.

Húsið er tveggja hæða norskt timburhús reist á velmektarárum kaupstaðarins (1902) Það er 80 fermetrar að grunnfleti
Á  götuhæð er stórt opið rými, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi, þar er sólpallur til suðurs.
Á efri hæð er annnað stórt opið rými og tvö lítil svefnherbergi.
Húsið er búið húsgögnum og öllum helstu þægindum. Það er upplagt bæði til íveru og sem vinnuaðstaða fyrir listafólk.

Húsaleiga er um semjanleg og fer eftir leigutíma.
Upplýsingar gefa thorag@simnet.is og rikeyk@simnet.is

Vinsamlegast sendið ekki fyrirspurnir til Skaftfells

Skaftfell dsc03063 500x375 Leiguhúsnæði fyrir listamenn

Skaftfell_draumhus

Leiðsögn og spjall um myndlist í september

Leiðsögn og spjall um myndlist

Í tilefni af sýningu Birgis Andréssonar, Tuma Magnússonar og Roman Signer mun Skaftfell bjóða uppá leiðsögn og almennt spjall um myndlist fyrir hópa af öllum gerðum nú í september.

Þetta er kjörið tækifæri til að öðlast innsýn í vinnuaðferðir samtíma listamanna og auka færni í lestri á myndlist.

Áhugasamir hafi samband við Skaftfell með tölvupósti, skaftfell@skaftfell.is eða í síma 472 1632 til að bóka.

Skaftfell batmrs saman 500x139 Leiðsögn og spjall um myndlist í september

Listamannaspjall og opnun sýninga í Skaftfelli

Gestalistamenn septembermánuðar, þau
Lina Jaros, Geir Mosed & Jens Reichert
bjóða til listamannaspjalls í Skaftfelli, miðstöð myndlistar á Austurlandi
föstudaginn 10. september kl. 17:00
þau munu halda stutt erindi um verk sín og sýna myndir.

Á sama tíma mun Jens Reichert opna sýninguna Washed ashore á Vesturveggnum og Geir Mosed opnar jafnframt sýninguna Plucked í Bókabúðinni – verkefnarými Skaftfells.

Lina Jaros, f. 1981 í Svíðjóð býr og starfar í Stokkhólmi. Hún lauk námi frá Konunglega listaháskólanum í Stokkhólmi 2009. Með ljósmyndavélina að vopni kannar Lina Jaros sálfræði hins óræða eða óljósa, hún stefnir saman manngerðum hlutum og náttúrulegum í uppstillingum sem svo verða að ljósmynd þar sem mörk  innra og ytra umhverfis renna saman. Lina Jaros mun sýna í Bókabúðinni í Október.

Geir Mosed, f. 1978 í Noregi býr og starfar í London. Hann lauk ljósmynda námi frá London Collage of Comunication árið 2008. Sýning Geirs í Bókabúðinni, Plucked, er einskonar rannsókn á tvíræðni heimilisins, félagslegri einangrun og mannlegum tengslum.

Jens Reichert, f. 1967 í Þýskalandi, býr og starfar í Freiburg. Jens er skúlptúristi í grunninn en hann fæst einnig við innsetningar, málverk, ljósmyndun og hljóð. Á sýningunni á Vesturveggnum mun Jens sýna litla skúlptúra, fundna hluti og ljósmyndir.

Skaftfell dsc00800 500x375 Listamannaspjall  og opnun sýninga í Skaftfelli