Monthly Archive for nóvember, 2010

Laust pláss í gestavinnustofu janúar og febrúar

Vegna óvæntra forfalla er laust pláss á Hóli – gestavinnustofu í janúar og febrúar 2011

Þeir listamenn sem ekki eru á biðslista þurfa að senda inn ferilskrá og nokkrar myndir af verkum eða link á heimasíðu á póstfangið skaftfell@skaftfell.is
Það verður valið samkvæmt þeim forsendum sem gefnar eru upp á heimasíðu Skaftfells, sjá frekari upplýsingar á http://skaftfell.is

Vegna þess hversu stuttur fyrirvarinn er þurfa þeir listamenn sem hafa áhuga að bregðast hratt við.

Skaftfell holl copy 500x246 Laust pláss í gestavinnustofu janúar og febrúar

Listamannaspjall í hádeginu föstud. 12. nóvember

Ethan Hayes-Chute og Magone Sarkovska sýna myndir og spjalla um eigin verk. Ethan og Magone eru bæði gestalistamenn í Skaftfelli fram til áramóta.

Gerum ráð fyrir að byrja 12:05 og spallið tekur ca. 30 mínútur. Þá er hægt að fá sér í svanginn á eftir eða á meðan!

Spjallið fer fram á ensku

hér má sjá verk listamannana:
http://ethanhc.com/
http://www.artslant.com/ny/artists/show/130377-magone-arkovska

Laust pláss í gestavinnustofu: Janúar 2011

Vegna óvæntra forfalla er laust pláss í gestavinnustofunni Járnhúsinu í janúar 2011