Monthly Archive for júní, 2011

Gestavinnustofur Skaftfells 2012 – Opið fyrir umsóknir til 1. sept

Gestavinnustofur Skaftfells 2012

Opið fyrir umsóknir til 1. september 2011

Skaftfell, miðstöð myndlistar á Austurlandi auglýsir eftir umsóknum í gestavinnustofur á árinu 2012.

Gestavinnustofum Skaftfells er ætlað að stuðla að samfélagi listamanna, heimamanna og gesta. Að búa í haginn fyrir skapandi samræður milli listarinnar og hversdagsins. Að búa listamönnum rými til vaxtar og sköpunar í litlu samfélagi þar sem allt er hægt.

Þó svo að gestavinnustofur Skaftfells séu fyrst og fremst fyrir myndlistarmenn þá eru teknar til greina umsóknir frá listamönnum sem vinna á milli miðla eða í fag-greinum er tengjast myndlist. Umsóknir frá hópum og fjölskyldum eru einnig vel séðar.

Breyting hefur orðið á fyrirkomulaginu frá fyrri árum. Nú eru 3 hús á Seyðisfirði í boði fyrir gestalistamenn; Gestavinnustofan í Skaftfelli, Hóll við Vesturveg og Norðurgata 5. Dvalartími er frá 1 upp í 6 mánuði.

Nauðsynlegt er að sækja um á þar til gerðu eyðublaði sem má finna á vefsíðu Skaftfells – ekki er tekið á móti rafrænum umsóknum

Allar frekari upplýsingar og umsóknareiðublað má finna á http://skaftfell.is

Pólsk kvikmyndahátíð

6. 7. & 8. júlí
Skaftfell, Austurvegi 42
&
8 – 10 júlí
Egilsstaðir
Sláturhúsið, menningarhús

Sýningar hefjast @21.00
Enginn aðgangseyrir

Kvikmyndahátíð frá Póllandi sem byggir á gömlum hefðum ferðabíóa. Hópur pólskra kvikmyndagerðamanna ferðast um Ísland með litla kvikmyndahátíð í skottinu. Kvikmyndirnar verða sýndar á völdum stöðum umhverfis landið en auk þess vinnur hópurinn að heimildamynd um ferðina.
Eftirfarand myndir verða sýndar í Skaftfelli:

1. Pociag/ Night Train (1959) – Jerzy Kawalerowicz
2. Salto (1965) – Tadeusz Konwicki
3. Nóz w wodzie/ Knife in the water (1961) – Roman Polanski
4. Rysopis/ Identyfication (1964) – Jezry Skolimowski

http://www.pawelandwawel.org

Skaftfell polskar kvikm 500x153 Pólsk kvikmyndahátíð

Uppákoman er hluti af Vertíð – uppákomuröð sumarsins 2011

“Soirée” – Listrænn eftirmiðdagur í Norðfirði

Ásdís Sif Gunnarsdóttir & Ragnar Kjartansson ásamt gestum

Rauða torgið 25. júní @16:00 – 18:00

Listrænn eftirmiðdagur í Norðfirði, “Soirée” Skemmtidagskrá með tónlist, söng og gjörningum

Skaftfell asd raggi 500x232 Soirée   Listrænn eftirmiðdagur í Norðfirði

Ásdís Sif Gunnarsdóttir og Ragnar Kjartansson fagna sumarsólstöðum á Norðfirði með því að búa til stemningu sem hæfir birtunni. Þau munu lesa upp ljóð, syngja og spila videoverk á þessari stórmerku árstíð.  Þarna verða líka óvæntir gestir/aðrir listamenn sem að munu láta ljós sitt skína.

Listrænar samkomur sem þessar eiga rætur sínar að rekja til Parísar þar sem að listamenn komu saman og sýndu hvor öðrum sín listaverk, drukku rauðvín, borðuðu súkkulaði og grétu yfir fallegum lögum.  Það er mikilvægt fyrir listamenn og listunnendur að koma saman í vinalegu umhverfi og fleyta listasögunni áfram.

asdissifgunnarsdottir.com

ragnarkjartansson.com

Uppákoman er hluti af Vertíð – uppákomuröð sumarsins 2011

 

 

Gufubað / Outer station

Skaftfell gufa loeng 500x125 Gufubað / Outer station

21. júní
Austurvegur 48, Bakgarður @23:00
Sumarsólstöðu gufa – takið með baðföt

Árið 2004 byggði sænski listamaðurinn Carl Boutard kringlótt, appelsínugult gufubað á Seyðisfirði. Fjölmargir Seyðfirðingar lögðu hönd á plóg, meðal annars starfsmenn trésmiðjunnar Töggur. vélsmiðjunnar stálstjörnur og netagerðarinnar. En svo fór gufubaðið til Sódómu. Árið 2008 kom listamaðurinn aftur og setti gufubaðið upp í bakgarði á Austurvegi á Seyðisfirði. Sumarið 2011 dvelst hann í gestavinnustofu Skaftfells og hyggs tyrfa gufubaðið. Verið velkomin í gufubað á sumarsólstöðum, þá gefst líka tækifæri á að rúlla sér í dögginni.
www.boutard.se

Uppákoman er hluti af Vertíð – uppákomuröð sumarsins 2011

Trjásafn Seyðisfjarðar

28.6. – 1.7. Trjásafnið opið ýmist fyrir eða eftir hádegi, sjá opnunartíma í glugga Bókabúðarinnar – verkefnarýmis

2.7. Uppákoma @ 16.00, hefst í Skaftfelli

Skaftfell screen shot 2011 07 05 at 102843 am Trjásafn Seyðisfjarðar

Vertíð

Skaftfell vertid1 500x99 Vertíð
Myndlist/tónlist/sviðslistir
17. júní – 13. ágúst

17 júní/June
Seyðisfjörður
Ráðhildur Ingadóttir
Baðstofa / rythmar
Angró, Hafnargötu 37 @17:00
Sýning og uppákomur / exhibition and events
Lýkur 1 ágúst/untill 1 August

21 júní/June
Seyðisfjörður
Carl Boutard
Outer Station / Gufubad
Austurvegur 48, bakgarður/garden @23:00
Sumarsólstöðu gufa – takið með baðföt / Summer Solstice sauna – bring bathing suit

25 júní/June
Neskaupstaður
Ásdís Sif Gunnarsdóttir & Ragnar Kjartansson ásamt gestum
Rauða torgið @16:00 – 18:00
Listrænn eftirmiðdagur í Neskaupstað, “Soirée” Skemmtidagskrá með tónlist, söng og gjörningum/
Bohemian afternoon in Neskaupstaður, “Soirée” program with music, singing and performances.

25 júní/June – 8 júlí/July
Seyðisfjörður
Unnar Örn
Bókabúðin – verkefnarými & Vesturveggurinn / the Bookshop – Projectspace & the West Wall gallery
Sýning og gerningur/exhibition and performance
Uppákoma á Vesturveggnum/Event at the West Wall gallery 2 júlí/July @16:00

1-3 júlí/July
Seyðisfjörður
Pólskar kvikmyndir/Polish Movies
Skaftfell, Austurvegi 42
Sýningar hefjast/screenings start @21:00
Enginn aðgangseyrir/no entrance fee
1. Pociag/ Night Train (1959) – Jerzy Kawalerowicz
2. Salto (1965) – Tadeusz Konwicki
3. Nóz w wodzie/ Knife in the water (1961) – Roman Polanski
4. Rysopis/ Identification (1964) – Jezry Skolimowski

8 – 10 júlí/July
Egilsstaðir
Pólskar kvikmyndir/Polish Movies
Sláturhúsið/the slaughterhouse
Sýningar hefjast/screenings start @21:00
Enginn aðgangseyrir/no entrance fee
1. Pociag/ Night Train (1959) – Jerzy Kawalerowicz
2. Salto (1965) – Tadeusz Konwicki
3. Nóz w wodzie/ Knife in the water (1961) – Roman Polanski
4. Rysopis/ Identification (1964) – Jezry Skolimowski
Sýningar hefjast kl. 21.00 alla þrjá dagana. Enginn aðgangseyrir.

8 – 9 júlí/July
Neskaupstaður
Enter the Mayhemisphere
Gamla vélsmiðjan
Þungamálms listahátíð á Eistnaflug – myndlist, tónlist og gerningar/Off-venue Heavy Metal art events at Eistnaflug festival – art, music and perfomances

12 júlí/July
Seyðisfjörður
Open Mike @21:00 – 24:00
Vesturveggurinn/the West Wall gallery, Skaftfell

30 júlí/July
Egilsstaðir
Auxpan, Helgi Örn, Konrad Korabiewski & Litten
Rafmagnsmúsik / Electronical music event
Sláturhúsið @16:00

31 júlí/July
Seyðisfjörður
Félagsskapurinn Fjallkonan / the Mountain Woman Fellowship
Garðveisla / Gardenparty
Austurvegur 48, garðurinn/the garden @15:00 – 17:00
Gerningar, tónlist, matur og gufuböð, allir veru velkomnir, hvort sem er til að njóta eða leggja eitthvað til málanna/Performances, music, snacks and sauna. Everyone is welcome, either to enjoy or to participate.

1. ágúst/August
Seyðisfjörður
Tónlistarskemmtun í anda Hauks og Ellýjar/Concert and dance in the spirit of old Icelandic 50′s music
Herðubreið @16:00
Aðgangseyrir/Entrance fee kr. 1000
Bjarni Freyr Ágústsson – söngur, gítar og trompett, Erla Dóra Vogler – söngur, Jón Hilmar Kárason – gítar, Þorlákur Ægir Ágústsson – bassi, Ágúst Ármann Þorláksson – píanó og hljómborð og Marias Kristjánsson – trommur

6 ágúst/Ágúst
Neskaupstaður
Auxpan, Helgi Örn, Konrad Korabiewski & Litten
Rafmagnsmúsik / Electronical music event
Blúskjallarinn/the Blues Cellar @21:00

13 ágúst/August
Seyðisfjörður
Skaftfell @16:00
Barbara Amelia Skovmand Thomsen
Vesturveggurinn/the West Wall gallery. Skaftfell
Nina Frgic, Maria Dabow, Claudia Hausfeld & Katla Stefánsdóttir
Bókabúðin – verkefnarými/the Bookshop – projectspace
Auxpan, Helgi Örn, Konrad Korabiewski & Litten
Sýningaopnun og raftónleikar/new exhibitions and electronical music event