Listamannaspjall #20

Gestalistamenn Skaftfells í janúar Gideonsson/Londré (SE) og Jessica Auer (CA) fjalla um verk sín og viðfangsefni þriðjudaginn 20. janúar kl. 17:00 í Skaftfell Bistró.

Gideonsson/Londré; „Twenty Four Seven“, gjörningur á Seyðisfirði 2015.

 Um listamennina

Jessica Auer (f.1978) er ljósmyndari og myndlistarmaður frá Montreal, Kanada. Í verkum sínum fjallar Jessica í megindráttum um menningarstaði, með áherslu á þemu sem tengja staði, ferðlag og menningarlega upplifun. Jessica útskrifaðist með MFA gráðu í Studio Arts frá Concordia University árið 2007 og hefur síðan sýnt verk sín í galleríum í Kanada og erlendis. Hún er meðlimur í samstarfshópnum Field Workers sem nú kennir ljósmyndun við Concordia University í Montreal. Í febrúar 2015 mun hún hafa einkasýningu í Listasafninu í Gotlandi í Visby, Svíþjóð.

Dúettinn GIDEONSSON/LONDRÉ (SWE) var stofnaður árið 2009 vegna sameiginlegs áhuga á mismunandi tegundum tilvistar. Vinnuaðferðir þeirra samanstanda af almennum rannsóknum, opinberum gjörningum og inngripum með þeim ásetningi að afmá mörkin milli viðfangsefnis og listræna afurða. Þungamiðjan í starfi þeirra er hugmyndin um hið þriðja, sem vísar í eitthvað sem er búið til að tveimur einstaklingum og ekki er hægt að eigna öðru hvoru.