Listamannaspjall

bb 2012 minni 250x187 Listamannaspjall

Skaftfell hefur tekið á móti þremur nýjum gestalistamönnum og munu þeir halda stutta kynningu næstkomandi þriðjudag kl. 21:00 í Bókabúðinni-verkefnarými.

Ásdís Sif Gunnarsdóttir sem dvelur í einn mánuð.
Manfred Hubmann frá Austurríki og dvelur hann í tvo mánuði.
Yann Leguay frá Brussel og dvelur hann í einn mánuð.

Spjallið fer fram á ensku og verða léttar veitingar í boði.

Listamannaspjall á Norðurgötu

Listamennirnir Joey Syta, Andrius Mulokas og Liam Scully hafa dvalið í gestavinnustofum Skaftfells frá því í mars.

Þeir munu allir ljúka dvöl sinni nú um mánaðarmótin og af því tilefni verður haldið óformlegt listamannaspjall miðvikudaginn 24. apríl kl. 14:00 í gestavinnustofunni að Norðurgötu 5.

Allir eru velkomnir!

skaftfell dsc03063 500x375 250x187 Listamannaspjall á Norðurgötu

Sequences VI – Utandagskrá

seq image Sequences VI   Utandagskrá

Dagskrá

Laugardaginn 13. apríl Sunndaginn 14. apríl
16:00-19:00
Liam Scully (UK)
HÓLLISTIC THERAPY
Hóll gestavinnustofa
15:00-22:00
Inga Jautakyte
(LT)
SLEEPING BEAUTY

Skaftfell, aðalsýningarsalur
17:00-19:00
Joey Syta (US)
ABOUT
Bókabúð-verkefnarými
18:00-21:00
Andrius Mulokas (LT)
DOMESTIC BLISS
Norðurgata gestavinnustofa

Dagskráin er hluti af Sequences VI – Utandagskrá www.sequences.is

 


 

 

 

Skaftfell hlaut Eyrarrósina

Skaftfell hlaut Eyrarrósina árið 2013, sem var afhent 12. mars í Hofi á Akureyri. Við erum mjög stolt og þakklát fyrir þessa viðurkenningu.

Fréttatilkynning: http://www.listahatid.is/um-listahatid-i-reykjavik/frettir/nr/2249

Málþing um uppbyggingu gestaíbúðar fyrir lista- og fræðimenn á Austurlandi

malthing gestavinnustofa Málþing um uppbyggingu gestaíbúðar fyrir lista  og fræðimenn á Austurlandi

Miðvikudaginn 13. mars verður haldið málþing um uppbyggingu gestaíbúða fyrir lista- og fræðimenn á Austurlandi.

Fyrirlesarar hafa þekkingu á slíkri uppbyggingu til margra ára. Margir velta fyrir sér þeim möguleika að búa til slíka þjónustu í sínu sveitarfélagi/svæði. Mikilvægt er að þekkja hindranir og tækifæri áður en lagt er af stað.

Vona að sem flestir gefi sé tíma til að mæta og taka þátt í umræðunni.

Staðsetning er Vonarland, húsnæði Austurbrúar á Egilsstöðum.

Tilnefning til Eyrarrósarinnar

Skaftfell er eitt af þremur verkefnum sem er tilnefnt til Eyrarrósarinn árið 2013.
Í umsögn dómnefndar segir:
„Skaftfell – miðstöð myndlistar á Austurlandi er í sögufrægu húsi í gamla bænum á Seyðisfirði. Kraftmikil og metnaðarfull starfsemi með skýra listræna sýn einkennir Skaftfell og með nánu samstarfi við bæjarbúa hefur orðið til á Seyðisfirði lifandi samfélag listamanna, heimamanna og gesta. Skaftfell er opið allan ársins hring og nánari upplýsingar um fjölbreytt starfið má finna á www.skaftfell.is.“
3172 1   selected 500x333 Tilnefning til Eyrarrósarinnar
Eyrarrósin verður afhent 12. mars í Hofi á Akureyri. Hin verkefnin eru Act Alone og Eistnaflug.

download.php Tilnefning til Eyrarrósarinnar

Relay – the word passed on

Kynningarmiðstöð íslenskrar myndlistar bauð Skaftfelli að taka þátt í nýjum mánaðarlegum dálki í bloggi þeirra, Relay – the word passed on.

Relay – the word passed on presents Skaftfell from Icelandic Art Center on Vimeo.

Nánar um Frásagnasafnið

Frá því í byrjun árs 2011 hefur Skaftfell staðið að verkefninu Frásagnasafnið.Tilgangurinn er að safna frásögnum allra íbúa Seyðisfjarðar á árunum 2011 til 2012 og varðveita einskonar svipmyndir sem saman lagðar gefa heildstæða mynd af samfélaginu. Meira

 

Listamannaspjall á Egilsstöðum

Þann 27. nóvember fóru gestalistamenn Skaftfells, Linda Persson og Liam Sprod, til Egilsstaða og heimsóttu nemendur á listnámsbraut í Menntaskólanum á Egilsstöðum. Linda og Liam héldu kynningu á samstarfi sínu og sýndu myndir af verkum sínum.

 

Söfnun á frásögnum lokið

Söfnun á frásögnum í Frásagnasafnið mun formlega ljúka hinn 1. desember. Verkefnið hefur staðið yfir í tvö ár og hafa safnast um tvö hundruð frásagnir frá íbúum Seyðisfjarðar.

Af þessu tilefni verða afrit af Frásagnasafninu afhent til varðveislu Bókasafni Seyðisfjarðar, Héraðskjalasafni Austfirðinga og Tækniminjasafni Austurlands. Fulltrúar frá þessum stofnunum munu veita því viðtöku.

Einnig munu Árný Björg Bergsdóttir verkefnastjóri Frásagnasafnsins, Hrafnkell Lárusson forstöðumaður Héraðsskjalasafns Austfirðinga og Pétur Kristjánsson forstöðumaður Tækniminjasafnsins flytja erindi um verkefnið.

Léttar veitingar í boði.

Um Skaftfell og Frásagnasafnið / Skaftfell and The Narrative Collection from Skaftfell on Vimeo.

Nánar um verkefnið

Frá því í byrjun árs 2011 hefur Skaftfell staðið að verkefninu Frásagnasafnið. Tilgangurinn er að safna frásögnum allra íbúa Seyðisfjarðar á árunum 2011 til 2012 og varðveita einskonar svipmyndir sem saman lagðar gefa heildstæða mynd af samfélaginu.

Það er einstakt að geta kortlagt endurminningar heils samfélags. Slík yfirsýn veitir ekki einungis innsýn í samfélagið heldur er það einstæð samtímaheimild. Heimild um mannlega tilvist, heimild um gang tímans, samspil kynslóðanna og þann grunn er liggur á bak við samtímann.

Frásagnir hafa verið teknar upp á myndband og verið til sýnis í bækistöð verkefnisins, söfnunarmiðstöðinni, í aðalsýningarsal Skaftfells. Söfnunarmiðstöðin var formlega opnuð 17. júní 2011 og þar gátu gestir horft á frásagnir og kynnt sér verkefnið. Miðstöðin var opin í átta mánuði og bættust frásagnir sífellt við.

Frumkvæði af Frásagnasafninu kom frá listrænum stjórnandi Skaftfells 2011-2012, svissneska listamanninum Cristoph Büchel. Verkefnið er unnið í samvinnu við Þjóðfræðistofu en söfnunin fer fram samtímis á Ströndum og á Seyðisfirði. Áætlað er að í lok árs 2012 verði söfnunin yfirstaðin.

RITHÖFUNDALEST(UR)

ritl 2012 500x453 RITHÖFUNDALEST(UR)

Hið árlega rithöfundakvöld verðu haldið að venju fyrstu aðventuhelgina, laugardaginn 1. des kl. 20:30 í Skaftfelli.

Fimm rithöfundar munu lesa úr nýútkomnum verkum sínum.

Kristín Steinsdóttir, Bjarna-Dísa

Kristín Ómarsdóttir, Milla

Steinunn Kristjáns, Sagan af klaustrinu á Skriðu

Einar Már Guðmundsson, Íslenskir kóngar

Eiríkur Örn Norðdahl, Illska

Glögg og piparkökur í Skaftfell Bistró.

Aðgangseyrir er 1.000 kr
500 kr fyrir börn og eldri borgara