Teikninámskeið fyrir 12 ára og eldri – Vorönn

Námskeiðið er í boði fyrir 12 ára og eldri, líka fullorðna. Áhersla verður lögð á að kynna og þjálfa mismunandi tækni og teiknistíla. Æfingarnar fela m.a. í sér að fínstilla sjón og skynjun, virkja hægra heilahvelið, finna eigin stíl og teikna módel.

Aldur: 12 ára og eldri. Líka fullorðnir!

Hvenær: 19. febrúar – 21. mars

– mánudaga kl. 15:00-16:30
– miðvikudaga kl. 15:00-16:30

Kennslustundir samtals: 15 klst. í 5 vikur

Hvar: í myndmenntastofu Seyðisfjarðarskóla

Leiðbeinandi: Litten Nyström

Verð: 15.000 kr. Innifalið allt efni og áhöld.

Skráning: [email protected]

Síðasti skráningardagur er fimmtudagurinn 15. febrúar

Athugið að námskeiðið fer fram á ensku en leiðbeinandinn skilur ágætlega íslensku.