GEIRI

Skaftfell hefur undanfarin ár haft umsjón með myndmenntarkennslu í 7.-10. bekk í Seyðisfjarðarskóla.

Á Vesturvegg gefur að líta verkefni sem nemendur í 9. – 10. bekk gerðu á vorönn 2012. Þau kynntu sér líf og list alþýðulistamannsins Ásgeirs Jón Emilssonar, Geira, og sóttu innblástur frá honum til að vinna að frjálsu verkefni.