Skaftfell – miðstöð myndlistar á Austurlandi rekur gestavinnustofur fyrir myndlistarmenn og fræðimenn í þrem húsum á Seyðisfirði.

Tekið er á móti umsóknum frá 1. júní ár hvert og umsóknarfrestur rennur út 1. september. Ekki er tekið á móti umsóknum á öðrum tímum.
Frekari upplýsingar um aðstöðu , dvalargjöld og skilmála má finna neðar á síðunni.

Gestavinnustofum Skaftfells er ætlað að stuðla að samfélagi listamanna, heimamanna og gesta. Að búa í haginn fyrir skapandi samræður milli listarinnar og hversdagsins. Að búa listamönnum rými til vaxtar og sköpunar í litlu samfélagi þar sem allt er hægt.

Eftirfarandi forsendur eru hafðar til grundvallar vali á listamönnum:

  • Gæði verka metin af innsendum gögnum.
  • Náms- og ferilskrá
  • Staðfesting á fagmennsku, metin af innsendum gögnum
  • Merki þess að dvöl í gestavinnustofu Skaftfells muni hafa gagnleg áhrif á þróun listamannsins.

Þó svo að gestavinnustofur Skaftfells séu fyrst og fremst fyrir myndlistarmenn þá eru teknar til greina umsóknir frá listamönnum sem vinna á milli miðla eða í aðra miðla en á forsendum myndlistar. Umsóknir frá hópum eru einnig vel séðar.

Tímamörk dvalar:

Hægt er að sækja um 1 til 6 mánuðir.

Dvöl hefst ávalt 1. hvers mánaðar, einungis er úthlutað heilum mánuðum.

Dvalargjöld:

Mánuðurinn 55.000

Staðfestingargjald sem samsvarar 1 mánuði greiðist um leið og gestavinnustofna er bókuð.

Gestavinnustofa Skaftfells

Á þriðju hæð Skaftfells er falleg og björt gestavinnustofa fyrir lista- og fræðimenn. Hún er 80 fermetrar og búin öllum helstu nauðsynjum. Gestavinnustofan skiptist í tvö svefnherbergi með sitthvoru hjónarúminu, baðherbergi með sturtu, og vinnurými. Í vinnurýminu er eldunaraðstaða, borðbúnaður, ísskápur, eldhúsborð og stólar, ljósaborð, borðplötur, búkkar o.fl. Einnig er þar tvíbreiður dívan sem nýtist jafnt sem sófi eða rúm.Í gestavinnustofunni er tölva (MAC), prentari og þráðlaust internet. Mögulegt er að fá afnot af skanna og síma.

Hóll – Gestavinnustofa Birgis Andréssonar

Gestavinnustofa Birgis Andréssonar er rekin í minningu hans. Birgir var einn af fremstu listamönnum sinnar kynnslóðar, list hans var tengd Íslandi og íslenskri menningu með afar sterkum hætti og arfleifð hans er mikilvæg spegilmynd þjóðar. Gestavinnustofan er fyrir myndlistarmenn og aðra lista- og fræðimenn.

Gestavinnustofan er til húsa á Hóli, húsi Birgis við Vesturveg á Seyðisfirði. Húsið er lágreist, einlyft einbýlishús. Það stendur við bakka Fjarðarár. Á jarðhæð hússins er stofa með góðu vinnurými sem snýr að ánni, lítið eldhús og baðherbergi með sturtu og þvottavél. Á efri hæð hússins eru tvö svefnherbergi með rúmstæðum fyrir 3. Í húsinu eru tveir aukabeddar. Borðbúnaður, sængur, rúmföt og handklæði fyrir 5 manns fylgja gestavinnustofunni.

Skaftfell holl copy 500x246 Gestavinnustofur

Norðurgata

Gestavinnustofan er til húsa að Norðurgötu 5, í miðbæ Seyðisfjarðar. Gestavinnustofan er á efrihæð hússins en á neðri hæðinni er vinnustofa listamannsins Garðars Eymundsonar. Í gestavinnustofunni sem er um 80 m3 eru tvö svefnherbergi og stórt vinnurými með eldhúsi, baðherbergi með baðkari og þvottaaðstaða eru staðsett á jarðhæð við innganginn. Borðbúnaður, sængur, rúmföt og handklæði fyrir 5 manns fylgja gestavinnustofunni. Möguleiki á auka rúmum er fyrir hendi.

Norðurgata 5 stendur við hliðina á vínveitingahúsi bæjarins og því ef til vill ekki hentugur dvalarstaður fyrir þá sem sofa mjög laust.

Skaftfell nordurgata1 500x414 Gestavinnustofur

Skaftfell dsc03063 500x375 Gestavinnustofur