Skaftfell gestavinnustofa
Á þriðju hæð Skaftfells, Austurvegi 42, er falleg og björt gestavinnustofa fyrir lista- og fræðimenn.
Gestavinnustofan er 80 fermetrar og búin öllum helstu nauðsynjum. Hún skiptist í tvö svefnherbergi með sitthvoru hjónarúminu, baðherbergi með sturtu, og vinnurými. Í vinnurýminu er eldunaraðstaða, borðbúnaður, ísskápur, eldhúsborð og stólar, ljósaborð, borðplötur, búkkar o.fl. Einnig er þar tvíbreiður dívan sem nýtist jafnt sem sófi eða rúm.
Í gestavinnustofunni er prentari og þráðlaust internet. Mögulegt er að fá afnot af skanna og síma.

