Leiðsögn fyrir hópa um sýninguna „Hnallþóra í sólinni“

Ljósm. Paula Prats

Skaftfell býður upp leiðsögn fyrir hópa um sýninguna „Hnallþóra í sólinn“. Nánar er hægt að lesa um sýninguna hér.

Í leiðsögninni er veitt innsýn í líf og list Dieters Roth, með áherslu á grafík- og bókverk. Nálgun Dieters við sköpunarferlið, tæknilegar aðferðir og efnivið var nýstárleg, og er hann talinn með áhrifamestu listamönnum frá Evrópu, eftir seinni heimstyrjöld.

Með fyrirvara er hægt er að panta pizzuhlaðborð hjá Bistró Skaftfell og fá fordrykk á meðan á leiðsögninni stendur.

Annar möguleiki er að fá leiðsögn og gæða sér svo á jólahlaðborði hjá Hótel Öldunni helgarnar 22.-23. nóv, 29.-30. nóv og 6.-7. des.

Lágmarkshópastærð 10 manns.

Til að panta leiðsögn hafið samband við skaftfell(a)skaftfell.is

Til að panta fordrykk eða mat hafið samband við info(a)hotelaldan.is