Opin vinnustofa

Mánudaginn 30. september
Kl. 15:00 – 17:00
Skaftfell gestavinnustofa, Austurvegur 42, 3. hæð

Á mánudaginn mun Åse Eg Jørgensen opna vinnustofu sína fyrir gestum og gangandi. Åse hefur dvalið á Seyðisfirði frá ágúst byrjun og unnið að allmörgum verkefnum. Tvisvar sinnum á tímabilinu bauð hún listamönnum, Karena Nomi og Camilla Nörgaar, til að dvelja hjá sér og vinna verk saman með aðstoð frá seyðfirskum listamönnum og grunnskólanemum Seyðisfjarðarskóla. Afrakstur samstarfsins verður til sýnis á morgun. Auk þess hélt hún áfram að vinna að bókverkaröðinni Komplendium og mun á morgun sýna verk 8 – 13 úr röðinni, ásamt fleiri heimilisverkefnum.

Åse Eg Jørgensen f. 1958 í Danmörku, útskrifaðist frá danska hönnunarskólanum árið 1989. Hún starfar sem listamaður og grafískur hönnuður, og hefur með-ritstýrt hinu danska Pist Protta í 30 ár. Åse vinnur með ýmsa prentmiðla og er mjög hrifin af pappír, litum og bókum. Hún er með aðsetur í Kaupmannahöfn og er eigandi Åse Eg Aps. www.hos-eg.dk

Með styrk frá: