Vali á gestalistamönnum fyrir 2018 er lokið.

Gestavinnustofur Skaftfells eru í fullu fjöri sem aldrei fyrr og vali á gestalistamönnum fyrir 2018 er lokið. Sérstök valnefnd fór yfir umsóknirnar en alls bárust 322 umsóknir, sem er svipaður fjöldi og árið áður. Þar af voru 42 listamönnum, víðsvegar að, boðið bæði sjálfstæða dvöl og þátttaka í þematengdu vinnustofunni Printing Matter.

Gestavinnustofunum er ætlað að stuðla að samfélagi listamanna og heimamanna, veita listamönnum rými til vaxtar og sköpunar í litlu samfélagi með óteljandi möguleikum og búa í haginn fyrir skapandi samræður milli listarinnar og hversdagsins. Listamennirnir dvelja í fjórum sögulegum húsum á Seyðisfirði, víðsvegar um bæinn, frá einum mánuði upp í sex mánuði.

Gestalistamenn í mars eru:

Eliso Tsintsabadze (Georgía) + Pavel Filkov (Rússland), Jacob Goldman (Bandaríkin), Pétur Magnússon (Ísland), og Isabel Beavers (Bandaríkin) + Laine Rettmer (Bandaríkin).

Listamenn sem koma seinna á árinu eru:

Ananda Serné (Holland), Angelica Falkeling (Holland) + Connie Butler (Bretland), Dagmar Subrtová (Tékkland), Dana Neilson (Kanada) + Tuomo Savolainen (Finnland), Elena Mazzi (Ítalía), Emma Hammarén (Svíþjóð), Grace Munakata (Bandaríkin), Hannimari Jokinen (Finnland) + Joseph Sam-Essandoh (Þýskaland/Gana), Itty Neuhaus (Bandaríkin), Jemila MacEwan (Ástralía), Joey Fauerso (Bandaríkin), Karen Werner (Bandaríkin), Nathan Hall (Bandaríkin), Philipp Valenta (Þýskaland) og Rán Jónsdóttir (Ísland).

Í samstarfi við Goethe Institut Dänemark getur Skaftfell boðið einum listamanni tveggja mánaðar dvalar- og ferðastyrk. Viðtakandi styrksins árið 2018 er Philipp Valenta (Þýskaland).

Alls taka 14 listamenn þátt í þematengdu vinnustofunni Printing Matter. Hún er tvisvar á ári, í febrúar og svo aftur í september á þessu ári. Í vinnustofunni er lögð áhersla á að skapa vettvang fyrir því að deila þekkingu, samtal og samstarf í tengslum við prentun og bókverk. Danska listakonan og grafíski hönnuðiurinn Åse Eg Jörgensen, ásamt Litten Nystrøm hefur þróað og kennt vinnustofuna. Hópurinn er með vinnuaðstöðu á Tækniminjasafninu og hefur þar aðgang að prentpressum sem safnið hefur að geyma.

Þátttakendur í ár eru:

Ash Kilmartin (Nýja Sjáland), Camille Lamy (Kanada), Christiane Bergelt (Þýskaland), Gill Partington (Bretland), Katalin Kuse (Þýskaland), Katherine Leedale (Bretland), Lucia Gašparovičová (Slóvakía), Mari Anniina Mathlin (Finnland), Miriam McGarry (Ástralía), Nathalie Brans (Holland), Patrick Blenkarn (Kanada), Rabia Ali (Pakistan), Rosie Flanagan (Ástralía/Slóvenía), Wilma Vissers (Holland)

Skaftfell hlakkar mikið til að bjóða þessa listamenn velkomna og sjá og heyra af þeirra sköpunarferli. Viðburðir í tengslum við gestavinnustofurnar s.s. listamannaspjall, sýningar, opnar vinnustofur, smiðjur og fl., eru tilkynntir jafnóðum.

Listi yfir fyrrum listamenn má skoða hérna.

Hægt er að lesa nánar um gestavinnustofurnar hérna.