Home » 2015

Samsöngur fyrir börn í Tvísöng

Sunnudaginn 28. júní kl. 15:00 verður efnt til samsöngs fyrir börn í hljóðskúlptúrnum Tvísöng, eftir Lukas Kühne, sem er staðsettur í Þófunum rétt fyrir ofan Seyðisfjarðarkaupstað.

Arna Magnúsdóttir ætlar að leiða sönginn og boðið verður upp á léttar veitingar.

Einnig mun Skógræktarfélag Seyðisfjarðar gróðursetja þrjú birkitré í tilefni 100 ára kosningarrétti kvenna og til að minnast þess að 30 ár eru liðin síðan frú Vigdís Finnbogadóttir var kjörin Forseti Íslands.

Þetta er í fjórða skipti sem viðburðinn er haldin en skúlptúrinn var opin almenningi í september 2012.

Viðburðinn er hluti af 120 ára afmælishátíð Seyðisfjarðarkaupstaðar.

Ljósmynd: Goddur