Fræðslustarf, á fjórðungsvísu og á alþjóðlegum grundvelli
Skaftfelli er ætlað að verða burðarstoð í listgreinamenntun á Austurlandi. Frá árinu 2001 hefur Dieter Roth Akademían, ásamt Listaháskóla Íslands, staðið fyrir árlegri vinnustofu útskriftarnema og erlendra gestanemenda í Skaftfelli. Á þessum námskeiðum er allur bærinn opnaður fyrir nemendunum, þeir vinna náið með starfsmönnum hinna ýmsu verkstæða og fyrirtækja í bænum að sýningu sinni í Skaftfelli. Í burðarliðnum er að víkka út þetta starf og bjóða uppá viðlíka námskeið fyrir erlendar akademíur. Skaftfell hefur einnig hafið markvisst fræðslustarf sem sniðið er að þörfum grunnskólanna á Austurlandi. Á hverjum vetri sendir Skaftfell frá sér eitt verkefni út til allra grunnskólanna á Austurlandi, sem fjallar um myndlist með einum eða öðrum hætti, til að auðga listgreinakennslu allra skólanna í fjórðungnum.
Að auki sér Skaftfell nú um myndmenntakennslu fyrir efri bekki Seyðisfjarðarskóla. Skaftfell tekur einnig reglulega á móti hópum frá framhaldskólunum á svæðinu, í sýningarheimsóknir og listamannaspjall.
Fræðsluverkefni Skaftfells skólaárið 2009 – 2010
Grunnskólarnir á Austurlandi
Þema: Hugmyndavinna og endurvinsla efnis í myndlist og sköpun.
Kennarar: Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, myndlistarmaður og Helgi Örn Pétursson, myndlistarmaður
Kennaranir fara með nemendunum í einfaldar æfingar þar sem ferli hugmyndavinnu verður rannsakað og nemendum kynntar mismunandir aðferðir til skapandi nálgunar við hversdagsleg viðfangsefni. Námskeiðinu er ætlað að víkka sjóndeildarhring nemendanna og auka á fagurfræðilegt læsi þeirra auk þess að gera þau færari um frumlega nálgun og úrlausnir.
Eskifjörður:



