Home » Fagráð Skaftfells

Fagráð Skaftfells

Í ársbyrjun 2017 tók formlega til starfa fagráð innan Skaftfells sem markar listræna stefnu og grundvallarforsendur varðandi sýningarhald, gestavinnustofur og fræðslustarfsemi. Fagráð tók við af heiðursstöðunni listrænn stjórnandi sem var skipaður til tveggja ára og hafði það fyrirkomulag verið við lýði síðan 2009. Eftirfarandi aðilar sinntu stöðu listræns stjórnanda á tímabilinu 2009-2017: Björn Roth, Christoph Büchel, Ráðhildur Ingadóttir og Gavin Morrison. Fagráðið er skipað af Sambandi íslenskra myndlistarmanna, Listaháskóla Íslands og Listfræðifélagi Íslands.

Fagráðið er innleitt af nokkrum ástæðum, m.a. til að efla samtal og samstarf við faggeirann og hið síbreytilega starfsumhverfi, auk þess að uppfylla skilyrði í rekstrarsamningi við Samband sveitafélaga á Austurlandi og Seyðisfjarðarkaupstað sem var undirritaður í júní 2015, og í 2020, til 5 ára.

 

Fagráð 2019 / 2020:  Ólöf Gerður Sigfúsdóttir, Magnús Helgason, Karina Hanney Marrero

Ólöf Gerður Sigfúsdóttir hefur bakgrunn í mannfræði og stundar nú doktorsnám í safnafræði við Háskóla Íslands, með fókus á rannsóknarstarf og þekkingarsköpun opinberra safna. Ólöf Gerður vinnur á mörkum mannfræði, efnismenningarfræði og safnafræði, og kannar leiðir til að beita sýningarstjórnun sem rannsóknaraðferð. Meðal sýninga sem hún hefur unnið má nefna Að þekkjast þekkinguna (Listasafn Árnesinga 2010) og Í bili (Hafnarborg 2011). Þá hefur hún skrifað um listamenn með áherslu á rannsóknarferli og rannsóknaraðferðir, s.s.  Seeing Beyond Science: Art as Epistemic Practice (The Green Box 2020), Ég hef misst sjónar af þér (Safnaðarheimili Neskirkju 2019), Myndlist á mörkunum: rannsóknarleiðangur listamanna (Listasafn Reykjavíkur 2017). Ólöf Gerður hefur verið virk í opinberri umræðu um myndlist, söfn og rannóknarpólitík, bæði hér á landi sem á erlendum vettvangi.

Magnús Helgason útskrifaðist frá Aki Art academy í Hollandi 2001. Hann býr og starfar á Akureyri. Magnús vinnur með mismunandi miðla s.s. málverk, kvikmyndagerð og innsetningar. Nýlega hefur Magnús unnið með öfluga segla í innsetningum sínum.

Karina Hanney Marrero er verkefnastjóri, listfræðingur og heilari. Hún er með mastergráðu í Samtímalistfræðum frá Goldsmiths háskólanum í London og hefur síðan bætt við sig jógakennararéttum, Reikiheilun og Landvarðarréttindum. Karina hefur efnt til og unnið að ólíkum verkefnum, listrannsóknum og útgáfum hér á landi í London og í Winnipeg. Á meðal áhuga- og rannsóknarsviða hennar eru; hliðarsögur, efnismenning, náttúruvernd, matarpólitík, heilsa og heildarhyggja og birtingarmyndir á misbeitingu valds í nær- og heimssamfélaginu. Karina býr í Reykjavík og vinnur sjálfstætt sem listfræðingur og heilari og sinnir landvörslu á sumrin.

 

Fagráð  2017 / 2018:  Bjarki Bragason, Karlotta Blöndal, Oddný Daníelsdóttir

Fagrad_2017

Bjarki Bragason hefur verið virkur á fagvettvangi bæði innanlands sem erlendis, auk þess sem hann hefur nokkra reynslu af sýningarstjórnun. Hann er virkur listrannsakandi og hefur töluverða reynslu af kennslu á háskólastigi auk fjölbreyttrar stjórnunarreynslu á sviði myndlistar. Bjarki lauk meistaraprófi í myndlist frá California Institute of the Arts, CalArts í Los Angeles og bakkalárprófi í myndlist frá Listaháskóla Íslands, en árið 2005 stundaði hann nám við Universität der Künste í Berlín. Bjarki gegnir stöðu lektors og fagstjóra bakkalárnáms við myndlistardeild Listaháskóla Íslands.

Karlotta Blöndal er myndlistarmaður sem starfar í mismunandi miðlum og birtast verk hennar í ólíku samhengi. Meginviðfangsefni myndlistar Karlottu hefur verið hugmyndin um frumgerð og eftirgerð og efniviðurinn sem slíkur og eru verk hennar eru oft rýmistengd. Karlotta útskrifaðist frá Listaakademíunni í Malmö 2002 og býr nú og starfar í Reykjavík.  Auk þess að vera starfandi myndlistarmaður tekur hún reglulega þátt í listamannsreknum verkefnum. Hún hefur bæði ritstýrt og verið meðútgefandi tímaritsins Sjónauka (tímarit um myndlist og fræði) og kemur reglulega að myndlistarkennslu. Hún er meðlimur í þverfaglega samstarfinu Könnunarleiðangurinn á Töfrafjallið, 2013-2020.  www.karlottablondal.net

Oddný Björk Daníelsdóttir fæddist 1986 í Reykjavík. Hún lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands árið 2006. Vorið 2011 útskrifaðist Oddný frá Háskóla Íslands með B.A. próf í listfræði með bókmenntafræði sem aukagrein. Þar af tók hún eitt ár í skiptinámi í Utrecht University í Hollandi. Oddný hóf meistaranám í listfræði í Háskóla Íslands en tók sér frí frá námi og á einungis meistararitgerð sína eftir en hún var byrjuð að rannsaka sýningastjórnun í myndlistarlífi Íslands. Oddný er einn af stofnendum Artíma Gallerí sem var gallerí listafræðinema við H.Í. rekið út frá sjónarhorni sýningastjóra. Oddný sat í stjórn félagsins 2012-2013 þar sem hún m.a. sá um skipulagningu og fjármögnun auk þess að sýningastýra á annan tug sýninga þar. Haustið 2013 fluttist Oddný til Seyðisfjarðar og hefur síðan unnið við ýmis tilfallandi verkefni á vegum Skaftfells, þ.á.m. við uppsetningu sýninga og við bókhald. Oddný hefur unnið við skrifstofustörf síðustu ár á Hótel Öldunni en er nú sölustjóri Skálanesseturs.