Släden + Ljósaskipti

Laugardaginn 12. október

14:00 – sólsetur

Släden

Laugardaginn 12. október kl.14:00-17:00 mun sænski listamaðurinn Björn Olsson setja upp og sýna sleða og braut sem hann hannaði og smíðaði fyrir ljósmyndavél árið 2012. Hægt er að setja brautina saman á mismunandi hátt og þannig mögulegt að aðlaga hana að mismunandi hlutum og landslagi. Myndavélinni er komið fyrir á sleða sem hreyfist á brautinni og innbyggð tölva stjórnar hraða myndavélarinnar.

“Með þessu tæki reyni ég að nálgast landslagið undir formerkjum kvikmyndaformsins og málverksins” Björn Olsson um “Sleðann” á www.bjornolsson.info

Verkefnið er unnið með stuðningi frá norrænu menningargáttinni KKNord.

Ljósaskipti

Útvarpsgjörningur fluttur í beinni útsendingu af kanadíska listamanninum Anna Friz ásamt sérstökum gesti, listamanninum Konrad Korabiewski.

Á tímabilinu 7.-11. október hefur útvarpslistamaðurinn Anna Friz, á hverjum degi við sólsetur, sent frá sér útvarpshljóðverkið Radiotelegraph og er það sent út samhliða á Seyðisfirði og á Radius sem er vettvangur fyrir tilraunakenndar útvarpssendingar í Chicago.  Radíóvitinn gefur frá sér merki við sólsetur á norðurhjara með því að nota töluð morsmerki, rafeindir og stuttbylgjumerki . Verkið “Ljósaskipti” býður áheyrendum að njóta hljóðheims og rafselgulsviðs Seyðisfjarðar þegar rökkva tekur.

Áheyrendum er uppálagt að stilla inn á FM 107.1 frá kl 17:41 á staðartíma í u.þ.b. eina klst. (eða þar til það byrjar að rökkva). Útsendingin mun eiga sér stað á efstu hæð Skaftfells og er áheyrendum einnig velkomið að kíkja við á opna útvarpsvinnustofu.
 Anna Friz : nicelittlestatic.com
Anna og Björn eru bæði gestalistamenn Skaftfells í september og október.