Húfur frá New Yok

Vetrarhúfur gerðar með hefðbundnum aðferðum.

Opnun laugardaginn 22. nóvember kl. 16:00. Opið daglega til 29. nóvember kl. 14:00-18:00.

Hönnunarfyrirtækið New Yok hefur tímabundið flutt starfsemi sína í Bókabúðina-verkefnarými í hjarta Seyðisfjarðar. Þar eru framleiddar handgerðar húfur úr ull af Seyðfirsku sauðfé beint úr nærliggjandi fjallahaga. Hægt er að fylgjast með ströngu vinnuferlinu, umbreytingu á hráu og kornóttu reyfi verkað í silkimjúkt garn og tilurð hinnar klassísku New Yok götustíls húfu. Sýningin leiðir gesti í gegnum framleiðsluferlið og gefur einstæða yfirsýn í vefnaðartækni.

Við þetta tækifæri mun listamaðurinn, Petter Letho, einnig sýna nýtt listaverk “Research and Reflection: the best of, so far“.  Verkið byggir á gömlum íkonískum ljósmyndum eftir Petter sem eru settar fram í nýtt samhengi.

Velkomin á opnun og heimsfrumsýningu á nýju húfunum frá New Yok 22. nóvember kl. 16:00. Á opnunin verður einni af hetjum New Yok heiðruð, listamaðurinn og hugsjónamaðurinn Sun Ra, sem fann ljósið í myrkinu og einfaldleikann í óreiðu.

VELKOMIN!

Verkefnið er styrkt af

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *