Skaftfell, myndlistarmiðstöð Austurlands, auglýsir eftir einbeittum, sjálfstæðum og drífandi forstöðumanni.
Starfsemi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og framþróun myndlistar á Austurlandi og er þeim markmiðum framfylgt með faglegri sýningardagskrá, rekstri gestavinnustofa og fræðslu fyrir börn og fullorðna í landsfjórðungnum. Við miðstöðina starfa þrír starfsmenn allt árið, auk sumarstarfsmanns.
Forstöðumaður ber ábyrgð á daglegum rekstri miðstöðvarinnar.
Helstu verkefni eru;
- Umsýsla með fjármálum, samningagerð og almenn stjórnunarstörf.
- Listræn stefnumótun, áætlanagerð og gerð styrkumsókna.
- Skipulagning og umsjón með sýningadagskrá og viðburðum, fræðsluverkefnum og starfsemi gestavinnustofa.
- Þátttaka í alþjóðlegum samstarfsverkefnum.
- Samstarf við aðrar menningarmiðstöðvar, skólastofnanir og aðra sem vinna að málefnum lista og menningar á landsvísu
- Umsjón með kynningarmálum fyrir miðstöðina og verkefni á hennar vegum.
- Rekstur og umsýsla með fasteign miðstöðvarinnar að Austurvegi 42.
Hæfniskröfur: krefst góðrar fagþekkingar á innlendum sem erlendum myndlistarheimi, reynsla á sviði menningarstjórnunar, þekking og reynsla af menningarmálum almennt mikilvæg, færni í mannlegum samskiptum auk góðra forystu- og skipulagshæfileika.
Starfið getur hentað jafnt konum sem körlum.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum BHM.
Æskilegt er að forstöðumaður geti hafið störf 1. okt 2018.
Allar frekari upplýsingar veitir Tinna Guðmundsdóttir, núverandi forstöðumaður, í síma 472 1632 eða á netfanginu skaftfell@archive.skaftfell.is
Umsóknarfrestur er til og með 20. ágúst 2018.
Umsóknir berist á netfangið admin@archive.skaftfell.is