Sýningaropnun Vesturveggur: Yfirum – Gunnhildur Hauksdóttir

Opnun á laugardaginn 21.júní klukkan 20:30.

Gunnhildur vinnur með umbreytingu efna eins og bleytu og þurrk, og tengsl staða og atriða úr náttúrunni í einfaldri, efnisnæmri framsetningu sem kallar fram hugleiðingu um spor, ummerki og eðli myndgerðar. Blekmyndir á steinpappír verða til í einföldum aðgerðum þar sem steinar og efnablöndur fá að stýra myndbyggingu. Steinar voru teknir úr nærumhverfi Reykjavíkur árið 2022 og nýttir til að búa til einþrykk á pappír sem unninn er úr frákasti í grjótnámum. Ferlið fól í sér að leggja steinana á blað og hella yfir þá blöndum af sjó, sandi, salti, akrýl, olíu og vatnsbleki. Þegar steinarnir eru fjarlægðir af pappírnum stendur eftir far, ummerki um ólík efni sem mætast á ógegndræpum fleti og berjast um yfirráð.

Gunnhildur Hauksdóttir vinnur af og til með grjót sem millilið á milli manns og náttúru, avatar fyrir kyrrstöðu og framrás tíma. Í verkum hennar er næmi fyrir tímalínum og tímaskyni sett fram sem myndrænt og hljóðrænt. Hún hefur áður tekið grjót frá Seyðisfirði og flutt það til Reykjavíkur og Berlínar í verkinu Skriða, tónverk fyrir kontrabassa unnið út frá skriðunni sem féll á Seyðisfjörð árið 2020. Hún vinnur með huglægt samband manna, dýra og atriða úr náttúru eins og sjó, gróður og atburði eins og skriður og jarðskjálfta, gang sólar og flóð og fjöru.

Uppúr teikningum verða stundum til kór- eða hljóðverk. Þessar teikningar sem hér eru hafa áður þjónað sem raddskrá fyrir kór athöfn sem var flutt í Reykjavík og hét úr Hjarta í stein. Í þetta sinn setti hún saman kór, Þokukórinn, með Seyðfirðingum sem var flutt á Sumarsólstöðuhátíð Skaftfells 2025. Verkið var unnið upp úr hugmyndum um gang sólar og morskóða.

Gunnhildur er búsett í Reykjavík og í Berlín, hún nam myndlist við Listháskóla Íslands og Sandberg Institute í Amsterdam, þaðan sem hún hlaut meistaragráðu árið 2005. Gunnhildur hefur starfað við gerð myndlistar undanfarin 20 ár, sýnt víða og starfað í þágu myndlistar á ýmsum sviðum, við kennslu, sýningastjórn og safnastarf. Hún hefur búið á Seyðisfirði af og til, flutti þangað fyrst sumarið 2001 og flutti þaðan síðast árið 2017, en heimsækir Seyðisfjörð árlega með nemendur úr Listaháskólanum og heldur utan um kúrsinn Vinnustofa á landsbyggðinni.