Hérna

 

Óhætt er að segja að hið séríslenska hikorð „hérna“ hjálpi manni að finna aftur þráðinn þegar maður tapar honum stundarkorn í samtali og frásögn.

Sænska listakonan Victoria Brännström opnar sýninguna Hérna í Bókabúðinni-verkefnarými. Victoria mun m.a. sýna afrakstur þögula göngutúrsins þar sem jurtum var safnað ásamt verkum úr ull og tré.

Upplestur kl 16:15
Boðið verður upp á glænýtt heimatilbúið bláberja- og krækiberjasaft.
Sýningin er hluti af Haustroða og verður einning opin: sun 18. okt kl. 12-14, mán 19. okt og þri 20. okt kl. 14-17.

Victoria Brännström er gestalistamaður Skaftfells í boði Norrænu menningargáttarinnar.

kkn logo 150x100 Þögull göngutúr – jurtasafn

Leave a Reply

Netfang þitt verður ekki birt. Nauðsynlegir reitir eru merktir *