Zine-vika: Sumarnámskeið fyrir börn og ungmenni 10+

👫 Aldur: 10+
📅 Dagsetningar: Vikan 16. – 20. Júní (frí 17. Júní)
Tímasetning: 13:00-16:00
💰 Verð: Frítt
📍 Staðsetning: Prentverk Seyðisfjörður – Öldugata 14

Gestalistamenn Skaftfells Philippa og Hector bjóða í viku langa vinnusmiðju í zine og prent-gerð sem leiðir til útgáfu á eigin verkum fyrir börn og ungmenni.

Á námskeiðinu læra þátttakendur mismunandi aðferðir og tækni til þess að gefa út eigin prentverk meðal annars með því að:

  • Prenta með mjólkurfernum og öðrum fundnum hráefnum
  • Nota rödd, hljóð og texta í eigin verkum
  • Vinna að hönnun og hugmyndum í útgáfugerð

Á námskeiðinu vinnur hópurinn saman við zine-gerð sem gefið verður út á Sumarsólstöðuhátíð Skaftfells þann 21.júní.

Philippa og Hector dvelja í gestavinnustofu Skaftfells í þrjá mánuði. Þau hafa komið að listkennslu í leikskólanum sem og haldið vinnusmiðju á laugardagsmorgnum í Herðubreið fyrir leikskólaaldur. Nú bjóða þau börnum eldri en tíu ára inn í sinn hugarheim sköpunar í gegnum prent, hljóð og zine-útgáfu.

Skráning á fraedsla@skaftfell.is