{"id":8042,"date":"2021-09-15T13:38:19","date_gmt":"2021-09-15T13:38:19","guid":{"rendered":"https:\/\/skaftfell.is\/anna-julia-fridbjornsdottir-og-karlotta-blondal-slod\/"},"modified":"2025-09-10T13:13:46","modified_gmt":"2025-09-10T13:13:46","slug":"anna-julia-fridbjornsdottir-og-karlotta-blondal-slod","status":"publish","type":"post","link":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/anna-julia-fridbjornsdottir-og-karlotta-blondal-slod\/","title":{"rendered":"Anna J\u00fal\u00eda Fri\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttir og Karlotta Bl\u00f6ndal: Sl\u00f3\u00f0"},"content":{"rendered":"<p><strong>Opnar 25. september kl. 16:00-18:00 \u00ed s\u00fdningarsalnum\u00a0<\/strong><\/p>\n<p><strong>Lei\u00f0s\u00f6gn fer fram sunnudaginn 26. september kl. 14:00<\/strong><\/p>\n<p><strong>S\u00fdningin stendur til 21. n\u00f3vember 2021. Opnunart\u00edmi m\u00e1n-f\u00f6s kl. 12-18, lau-sun kl. 16-18.<\/strong><\/p>\n<p><strong>A\u00f0gangur \u00ed gegnum bistr\u00f3i\u00f0 \u00e1 fyrstu h\u00e6\u00f0.<\/strong><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><span style=\"font-weight: 400;\">S\u00fdningin <\/span><i><span style=\"font-weight: 400;\">Sl\u00f3\u00f0<\/span><\/i><span style=\"font-weight: 400;\"> er sams\u00fdning myndlistarmannanna \u00d6nnu J\u00fal\u00edu Fri\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttur og Karlottu Bl\u00f6ndal. Verkin vinna \u00fe\u00e6r \u00ed sitt hvoru lagi en v\u00edsa b\u00e1\u00f0ar \u00ed fornleifafundinn \u00e1 Vestdalshei\u00f0i \u00e1ri\u00f0 2004 sem samanst\u00f3\u00f0 af mannabeinum, skartgripum og glerperlum og er talinn vera fr\u00e1 mi\u00f0ri t\u00edundu \u00f6ld. Anna J\u00fal\u00eda vinnur einnig me\u00f0 fjarskiptat\u00e6kni sem hefur tengingu vi\u00f0 t\u00e6knis\u00f6gu Sey\u00f0isfjar\u00f0ar.<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-weight: 400;\">\u00cd verkum <a href=\"https:\/\/www.annajuliaf.com\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"><strong>\u00d6nnu J\u00fal\u00edu<\/strong><\/a> berast \u00e1v\u00f6rp \u00far fort\u00ed\u00f0 og inn \u00ed n\u00fat\u00ed\u00f0 og milli manns og n\u00e1tt\u00faru. \u00deeim er \u00e6tla\u00f0 a\u00f0 berast \u00e1 milli tveggja heima en flakka \u00ed rauninni \u00e1 milli \u00f3rav\u00eddda. B\u00e6\u00f0i efnivi\u00f0ur og framsetning verka \u00d6nnu J\u00fal\u00edu tvinna saman sta\u00f0bundna menningars\u00f6gu og heimspekilegar vangaveltur um skilabo\u00f0 sem fer\u00f0ast fram og aftur \u00ed t\u00edma. Koparpl\u00f6tum er ra\u00f0a\u00f0 upp \u00ed Morse-k\u00f3\u00f0a sem stafar fjarskiptamerki\u00f0 QSB sem er Q-m\u00e1l og merkir \u201cAre my signals fading\u201d (\u00edsl. \u201eHafa merki m\u00edn dofna\u00f0\u201c). Pl\u00f6turnar eru \u00feurrn\u00e1lristur af klettum og fjallshlutum umhverfis Sey\u00f0isfj\u00f6r\u00f0. \u00cd \u00f6\u00f0ru verki eru perlur \u00fer\u00e6ddar \u00e1 koparv\u00edr og stafa or\u00f0i\u00f0 \u201eSl\u00f3\u00f0\u201c \u00ed Morse-k\u00f3\u00f0a. Koparinn hefur \u00e1\u00fereifanlegar og hugl\u00e6gar tilv\u00edsanir \u00ed bo\u00f0skipti og \u00fej\u00f3nar sem eins konar millili\u00f0ur \u00e1horfanda og \u00f3r\u00e6\u00f0s vi\u00f0takanda. \u00cd \u00feunnu papp\u00edrstjaldi sem hangir \u00far loftinu er setningin \u201eSnj\u00f3a\u00f0i \u00ed logni vi\u00f0 og vi\u00f0 \u00ed g\u00e6r\u201c g\u00f6tu\u00f0 \u00ed papp\u00edrinn me\u00f0 a\u00f0fer\u00f0 gatabor\u00f0anna sem nota\u00f0ir voru vi\u00f0 flutning skeyta \u00ed gamla rits\u00edmanum. Skilabo\u00f0in er fengin \u00far ve\u00f0ursk\u00fdrslu fr\u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i fr\u00e1 1952.\u00a0<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-weight: 400;\">Verk <a href=\"https:\/\/www.karlottablondal.net\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"><strong>Karlottu<\/strong><\/a> hverfast um fjallkonuna sj\u00e1lfa og fundarsta\u00f0 munanna. H\u00fan kanna\u00f0i sta\u00f0inn nokkrum sinnum \u00ed sumar og vann \u00fear verk undir berum himni <\/span><span style=\"font-weight: 400;\">\u00ed<\/span><span style=\"font-weight: 400;\"> tilraun til a\u00f0 fanga umhverfi\u00f0 og stemninguna \u00e1 sv\u00e6\u00f0inu. Vi\u00f0 t\u00falkun s\u00edna og skr\u00e1setningu vann h\u00fan undir formerkjum og a\u00f0fer\u00f0afr\u00e6\u00f0i myndlistar en til hli\u00f0sj\u00f3nar n\u00fdtti h\u00fan s\u00e9r ranns\u00f3knir Rannveigar \u00de\u00f3rhallsd\u00f3ttur fornleifafr\u00e6\u00f0ings sem skrifa\u00f0i um fundinn \u00ed meistararitger\u00f0 sinni. Skr\u00e1setningin af sv\u00e6\u00f0inu er \u00ed formi verka sem eru annars vegar abstrakt og hins vegar rauns\u00e6isleg teikning \u00ed anda fer\u00f0ab\u00f3ka 18. aldar. Form abstrakt verkanna \u00e1 striga eru s\u00f3tt \u00ed skipulagsteikningu fornleifafr\u00e6\u00f0inganna af sta\u00f0num og er \u00e1fer\u00f0in fengin me\u00f0 snerti \u00ferykki. Litirnir v\u00edsa til hinna marglitu perla sem fundust \u00fear. Me\u00f0 verkinu yfirf\u00e6rir Karlotta sta\u00f0inn inn \u00ed s\u00fdningarr\u00fdmi Skaftfells. Auk \u00feess vinnur h\u00fan me\u00f0 getg\u00e1tur um hver fjallkonan og \u00f6rl\u00f6g hennar hafi m\u00f6gulega veri\u00f0 og varpar \u00feannig fram vangaveltum um b\u00e6\u00f0i me\u00f0vitu\u00f0 og \u00f3me\u00f0vitu\u00f0 vi\u00f0horf okkar gagnvart t\u00falkun okkar \u00e1 horfnum t\u00edma.\u00a0<\/span><\/p>\n<p><span style=\"font-weight: 400;\">\u00darvinnsla og framsetning \u00e1 verkum Karlottu og \u00d6nnu J\u00fal\u00edu opnar \u00e1 huglei\u00f0ingar um t\u00edma og r\u00fam sem \u00fe\u00e6r \u00fer\u00e6\u00f0a sig \u00ed gegnum og skapa me\u00f0 \u00fatkomu sinni vettvang \u00fear sem n\u00fat\u00edmi og fort\u00ed\u00f0 m\u00e6tast. \u00c1 hva\u00f0a lei\u00f0 voru\u00f0 \u00fei\u00f0 og \u00e1 hva\u00f0a lei\u00f0 erum vi\u00f0? Vi\u00f0 t\u00f6kum vi\u00f0 e<\/span><span style=\"font-weight: 400;\">ndanum \u00e1 \u00fer\u00e6\u00f0inum og lei\u00f0um hann \u00e1fram.<\/span><\/p>\n<p>Vi\u00f0 viljum \u00feakka Rannveigu \u00de\u00f3rhallsd\u00f3ttur, fornleifafr\u00e6\u00f0ingi, Zuhaitz Akizu, forst\u00f6\u00f0umanni T\u00e6kniminjasafns Austurlands, P\u00e9tri Kristj\u00e1nssyni, fyrrum forst\u00f6\u00f0umanni T\u00e6kniminjasafns Austurlands, J\u00f3hanni Gr\u00e9tari Einarssyni, fyrrum starfsmanni g\u00f6mlu rits\u00edmast\u00f6\u00f0varinnar \u00e1 Sey\u00f0isfir\u00f0i, og Ve\u00f0urstofu \u00cdslands k\u00e6rlega fyrir uppl\u00fdsingagj\u00f6f vi\u00f0 undirb\u00faning s\u00fdningarinnar.<\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><em><b>\u00dea\u00f0 sem a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 hafi gerst.\u00a0\u00a0<\/b><\/em><\/p>\n<p><em><b>Sl\u00f3\u00f0 \/ Trace, Skaftfell<\/b><\/em><\/p>\n<p><em><b>Texti eftir Starka\u00f0 Sigur\u00f0arson<\/b><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"font-weight: 400;\">Samskipti byrju\u00f0u sem einf\u00f6ld skilabo\u00f0. Brosa, gretta, kinka kolli, hrista haus, h\u00e6gri, vinstri, \u00fe\u00fa, \u00e9g, af, \u00e1. Vi\u00f0 \u00feurftum a\u00f0 vera n\u00e1l\u00e6gt hvor \u00f6\u00f0ru; \u00e9g gat sagt eitthva\u00f0 vi\u00f0 \u00feig og s\u00ed\u00f0an \u00fe\u00fa eitthva\u00f0 vi\u00f0 mig. Svo f\u00f3rum vi\u00f0 a\u00f0 \u00fatf\u00e6ra fl\u00f3knari bo\u00f0 og s\u00ed\u00f0an bo\u00f0 sem n\u00e1\u00f0u yfir okkar l\u00f6ngu vegalengdir. En \u00fe\u00f3 tungum\u00e1li\u00f0 yr\u00f0i st\u00e6rra og n\u00e1kv\u00e6mara og samskipti d\u00fdpri \u00fe\u00e1 vitum vi\u00f0 l\u00edka a\u00f0 skilabo\u00f0, tungum\u00e1l, samskipti eru \u00f3fullkomin, \u00f3lj\u00f3s, \u00fea\u00f0 er h\u00e6gt a\u00f0 misskilja, t\u00falka skakkt. Og vitandi \u00fea\u00f0 \u00fe\u00e1 f\u00e6rist \u00e1byrg\u00f0in fr\u00e1 tungum\u00e1linu til \u00feeirra sem f\u00e6ra skilabo\u00f0in \u00e1 milli \u2013 til \u00feess sem sendir \u00fat skilabo\u00f0i\u00f0 og til \u00feess sem tekur vi\u00f0 \u00feeim. Eru \u00feessi skilabo\u00f0 fyrir mig? Er veri\u00f0 a\u00f0 segja m\u00e9r \u00feetta, e\u00f0a \u00feetta? Skil \u00e9g \u00feetta r\u00e9tt? Er \u00feetta sem \u00e9g fann \u2013 l\u00edk, perlur, hn\u00edfur, \u00ed hellissk\u00fata uppi \u00e1 hei\u00f0i \u2013 a\u00f0 segja m\u00e9r eitthva\u00f0? Er \u00fea\u00f0 mitt a\u00f0 svara?<\/span><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"font-weight: 400;\">T\u00edminn er alltaf hluti af samskiptabo\u00f0um \u00f6llum; samskipti eiga s\u00e9r sta\u00f0 \u00ed gegnum t\u00edma. T\u00edminn getur l\u00edka bjaga\u00f0 skilabo\u00f0, sliti\u00f0 \u00feau, alveg eins og t\u00edminn getur geymt sl\u00f3\u00f0a og bori\u00f0 eitthva\u00f0 \u00f3tr\u00falegt. Svo \u00f3tr\u00falegt stundum a\u00f0 ekki er auglj\u00f3st hva\u00f0 \u00fea\u00f0 er sem vi\u00f0 sj\u00e1um fyrir framan okkur e\u00f0a hverju \u00e1 um \u00fea\u00f0 a\u00f0 tr\u00faa. \u00c1minning um a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 vitum er a\u00f0 vi\u00f0 getum ekki vita\u00f0 allt fyrir v\u00edst. Getum ekki vita\u00f0 alveg hva\u00f0 er veri\u00f0 a\u00f0 segja okkur. Og vi\u00f0 \u00fea\u00f0 opnast \u00e1 eitthva\u00f0, allt ver\u00f0ur svo sem m\u00f6gulegt. Sem er kannski \u00f3gnvekjandi en er l\u00edka hversdagslegt, venjulegt. \u00deegar m\u00f6guleikarnir eru margir \u00fe\u00e1 \u00feurfum vi\u00f0 a\u00f0 t\u00falka og giska. Eins og vi\u00f0 giskum um ve\u00f0ri\u00f0 e\u00f0a \u00e1ttir e\u00f0a \u00feegar vi\u00f0 skynjum a\u00f0 \u00fe\u00f6gnin \u00ed jar\u00f0arf\u00f6r \u00fe\u00fd\u00f0ir eitthva\u00f0 e\u00f0a \u00ed samskiptum vi\u00f0 einhvern sem ma\u00f0ur elskar. \u00deagnirnar eins mikilv\u00e6gar au\u00f0vita\u00f0 og hlj\u00f3\u00f0in e\u00f0a hreyfingarnar, \u00feagnirnar \u00ed morsk\u00f3\u00f0u\u00f0u skilabo\u00f0i jafnt og p\u00edpin, etc.\u00a0<\/span><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"font-weight: 400;\">Og \u00feannig giskum vi\u00f0 h\u00e9r: Hva\u00f0 v\u00e6ri \u00e9g a\u00f0 gera uppi \u00e1 hei\u00f0i? Hverju tr\u00fai \u00e9g um framt\u00ed\u00f0ina? Af hverju v\u00e6ri \u00e9g me\u00f0 perlur? Allar \u00feessar perlur og hn\u00edf? Ung manneskja uppi \u00e1 hei\u00f0i. A\u00f0 finna m\u00e9r skj\u00f3l til \u00feess a\u00f0 deyja e\u00f0a til \u00feess a\u00f0 lifa af? R\u00e9tt \u00e1\u00f0ur en \u00fe\u00fa hverfur \u00ed 1000 \u00e1r. \u00dea\u00f0 finnast \u00fe\u00f3 ekki allir aftur.<\/span><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"font-weight: 400;\">\u00dea\u00f0 eru endalausar spurningar. Er \u00feetta um sumar e\u00f0a vetur? Ertu lifandi \u00e1 \u00fe\u00ednum eigin f\u00f3tum e\u00f0a ertu d\u00e1inn og einhver heldur \u00e1 \u00fe\u00e9r? Kannski ertu v\u00f6lva sem sp\u00e1ir fram \u00ed t\u00edmann og s\u00e9r\u00f0 dau\u00f0a \u00feinn fyrir \u2013 e\u00f0a giskar allavegana til um hann. Kannski ertu \u00fej\u00f3fur sem t\u00f3kst perlurnar, hlaupst \u00e1 brott, en n\u00e1\u00f0ir ekki n\u00f3gu langt. S\u00ed\u00f0ustu or\u00f0in? \u00c9g veit \u00fea\u00f0 ekki.\u00a0<\/span><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"font-weight: 400;\">Ef vi\u00f0 erum a\u00f0 giska \u00fe\u00e1 getur allt veri\u00f0 tungum\u00e1l, merking, samskipti. En a\u00f0 giska er \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0 gerum, getum ekki nema. Og jafnvel \u00fe\u00f3 a\u00f0 vi\u00f0 \u00edmyndum okkur a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem vi\u00f0, me\u00f0 okkar bestu getu, h\u00f6fum giska\u00f0 \u00e1, a\u00f0 \u00fea\u00f0 sem a\u00f0 vi\u00f0 h\u00f6ldum a\u00f0 hafi gerst, s\u00e9 r\u00e9tt, \u00fe\u00e1 vitum vi\u00f0 a\u00f0 \u00fea\u00f0 f\u00e6st aldrei alveg sta\u00f0fest. Vi\u00f0 eigum eftir a\u00f0 giska anna\u00f0 \u00ed dag heldur en \u00e1 morgun. \u00de\u00fa \u00e1tt eftir a\u00f0 giska anna\u00f0 en \u00e9g. Ef til vill giskum vi\u00f0 betur \u00ed dag me\u00f0 \u00f6\u00f0ruv\u00edsi t\u00f3lum og \u00f6\u00f0ruv\u00edsi samf\u00e9lagi heldur en \u00feegar l\u00edk e\u00f0a leirpottur e\u00f0a m\u00e1lverk fannst fyrir 100 e\u00f0a 1000 \u00e1rum. Og kannski einhvern t\u00edmann munum vi\u00f0 vita allt um \u00feetta allt og getum \u00e1tt samskipti \u00e1n efa en \u00ed dag \u00feurfum vi\u00f0 enn\u00fe\u00e1 a\u00f0 elska a\u00f0 horfa og hugsa og giska.\u00a0\u00a0<\/span><\/em><\/p>\n<p><em><span style=\"font-weight: 400;\">Kannski er \u00fe\u00e1 skilabo\u00f0i\u00f0 h\u00e9r, merkingin, a\u00f0 vi\u00f0 fundum \u00feessa manneskju aftur. Kannski v\u00e6ri manneskjan \u00feakkl\u00e1t fyrir \u00fea\u00f0. A\u00f0 \u00feessi manneskja getur sagt n\u00fana, sj\u00e1\u00f0u \u00feetta, h\u00e9rna, \u00fea\u00f0 sem \u00e9g er me\u00f0. Perlurnar enn\u00fe\u00e1 fallegar. Sk\u00fati enn\u00fe\u00e1 skj\u00f3l.<\/span><\/em><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><b><a href=\"https:\/\/www.annajuliaf.com\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\">Anna J\u00fal\u00eda Fri\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttir<\/a> <\/b><span style=\"font-weight: 400;\">(f. 1973) b\u00fdr og starfar \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan vinnur \u00fevert \u00e1 mi\u00f0la <\/span><span style=\"font-weight: 400;\">og sko\u00f0ar mengi\u00f0 \u00e1 milli v\u00edsinda og menningar \u00ed verkum sem taka mi\u00f0 af samt\u00edma og s\u00f6gulegum m\u00e1lefnum.<\/span><span style=\"font-weight: 400;\"> H\u00fan lauk MA gr\u00e1\u00f0u fr\u00e1 Manchester School of Arts, Manchester Metropolitan University, 2004 og BA Fine Art (Hons) gr\u00e1\u00f0u fr\u00e1 London Guildhall University 1998. \u00c1\u00f0ur stunda\u00f0i h\u00fan n\u00e1m vi\u00f0 Myndlista og hand\u00ed\u00f0ask\u00f3la \u00cdslands 1993-95. Anna J\u00fal\u00eda starfa\u00f0i sem verkefna- og s\u00fdningarstj\u00f3ri \u00ed i8 galler\u00ed 2008-2015 og var me\u00f0stofnandi og ritstj\u00f3ri myndlistart\u00edmaritsins Sj\u00f3nauka sem var gefi\u00f0 \u00fat \u00e1 \u00e1runum 2007-2009. H\u00fan hefur teki\u00f0 \u00fe\u00e1tt \u00ed fj\u00f6lda sams\u00fdninga og haldi\u00f0 fj\u00f3rar einkas\u00fdningar \u00e1 \u00cdslandi en h\u00fan var tilnefnd til \u00cdslensku myndlistarver\u00f0launanna 2018 fyrir s\u00fdninguna <\/span><i><span style=\"font-weight: 400;\">Erindi<\/span><\/i><span style=\"font-weight: 400;\"> \u00ed Hafnarborg.\u00a0<\/span><\/p>\n<p><a href=\"https:\/\/www.karlottablondal.net\" target=\"_blank\" rel=\"noopener\"><b>Karlotta Bl\u00f6ndal<\/b><\/a><b>\u00a0<\/b><span style=\"font-weight: 400;\">(f. 1973) b\u00fdr og starfar \u00ed Reykjav\u00edk. H\u00fan vinnur \u00ed mismunandi mi\u00f0lum, allt fr\u00e1 teikningu, m\u00e1lun, \u00fatg\u00e1fu, umhverfisverka og gj\u00f6rninga. Verk hennar kanna m\u00f6rk og bl\u00f6ndun v\u00eddda, \u00feess andlega og efnislega, \u00feess er tengist skynjunum og \u00feess fr\u00e6\u00f0ilega. Oft er \u00e1kve\u00f0inn sta\u00f0ur vi\u00f0fangsefni verkanna, \u00feau eru gjarnan gj\u00f6rningatengd og fela \u00ed s\u00e9r \u00fe\u00e1ttt\u00f6ku af einhverju tagi. Karlotta lauk MA gr\u00e1\u00f0u fr\u00e1 Konsth\u00f6gskolan i Malm\u00f6, 2002 og BA gr\u00e1\u00f0u fr\u00e1 Myndlista- og hand\u00ed\u00f0ask\u00f3la \u00cdslands, 1997. Auk \u00feess a\u00f0 vera starfandi myndlistarma\u00f0ur tekur h\u00fan reglulega \u00fe\u00e1tt \u00ed listamannareknum verkefnum. H\u00fan hefur b\u00e6\u00f0i ritst\u00fdrt og veri\u00f0 me\u00f0\u00fatgefandi t\u00edmaritsins Sj\u00f3nauka (t\u00edmarit um myndlist og fr\u00e6\u00f0i) og kemur reglulega a\u00f0 myndlistarkennslu. H\u00fan er me\u00f0limur \u00ed \u00feverfaglega samstarfinu K\u00f6nnunarlei\u00f0angurinn \u00e1 T\u00f6frafjalli\u00f0, 2013-2020.\u00a0<\/span><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n<p><img decoding=\"async\" class=\"size-large wp-image-17069 alignleft lazyload\" data-src=\"https:\/\/skaftfell.is\/wp-content\/smush-webp\/2025\/08\/MRN_SSA_SFK_MTH-scaled-1.jpg.webp\" alt=\"\" width=\"500\" height=\"101\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" style=\"--smush-placeholder-width: 500px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 500\/101;\" \/><img decoding=\"async\" class=\"wp-image-16234 alignleft lazyload\" data-src=\"https:\/\/skaftfell.is\/wp-content\/smush-webp\/2025\/08\/Myndlistarsjodur-scaled-1.jpg.webp\" alt=\"\" width=\"287\" height=\"58\" src=\"data:image\/svg+xml;base64,PHN2ZyB3aWR0aD0iMSIgaGVpZ2h0PSIxIiB4bWxucz0iaHR0cDovL3d3dy53My5vcmcvMjAwMC9zdmciPjwvc3ZnPg==\" style=\"--smush-placeholder-width: 287px; --smush-placeholder-aspect-ratio: 287\/58;\" \/><\/p>\n<p>\u00a0<\/p>\n","protected":false},"excerpt":{"rendered":"<p>Opnar 25. september kl. 16:00-18:00 \u00ed s\u00fdningarsalnum\u00a0 Lei\u00f0s\u00f6gn fer fram sunnudaginn 26. september kl. 14:00 S\u00fdningin stendur til 21. n\u00f3vember 2021. Opnunart\u00edmi m\u00e1n-f\u00f6s kl. 12-18, lau-sun kl. 16-18. A\u00f0gangur \u00ed gegnum bistr\u00f3i\u00f0 \u00e1 fyrstu h\u00e6\u00f0. \u00a0 S\u00fdningin Sl\u00f3\u00f0 er sams\u00fdning myndlistarmannanna \u00d6nnu J\u00fal\u00edu Fri\u00f0bj\u00f6rnsd\u00f3ttur og Karlottu Bl\u00f6ndal. Verkin vinna \u00fe\u00e6r \u00ed sitt hvoru lagi en [&hellip;]<\/p>\n","protected":false},"author":1,"featured_media":2328,"comment_status":"open","ping_status":"open","sticky":false,"template":"","format":"standard","meta":{"_acf_changed":false,"wds_primary_category":0,"footnotes":""},"categories":[423],"tags":[],"class_list":["post-8042","post","type-post","status-publish","format-standard","has-post-thumbnail","hentry","category-syningar-og-vidburdir"],"acf":[],"_links":{"self":[{"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8042","targetHints":{"allow":["GET"]}}],"collection":[{"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts"}],"about":[{"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/types\/post"}],"author":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/users\/1"}],"replies":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/comments?post=8042"}],"version-history":[{"count":0,"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/posts\/8042\/revisions"}],"wp:featuredmedia":[{"embeddable":true,"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media\/2328"}],"wp:attachment":[{"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/media?parent=8042"}],"wp:term":[{"taxonomy":"category","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/categories?post=8042"},{"taxonomy":"post_tag","embeddable":true,"href":"https:\/\/skaftfell.is\/is\/wp-json\/wp\/v2\/tags?post=8042"}],"curies":[{"name":"wp","href":"https:\/\/api.w.org\/{rel}","templated":true}]}}