Afmælisfjölfeldi – Skaftfell 20 ára

Skaftfell hefur gefið út sérstakt fjölfeldi til að fagna 20 ára afmæli miðstöðvarinnar og standa að fjársöfnun fyrir starfsemina. Listamennirnir sem að útgáfunni koma eru: Silvia Bächli & Eric Hattan (Sviss), Margrét H. Blöndal, Ragnar Kjartansson og Roman Signer (Sviss).

Listamennirnir eiga það  sameiginlegt að tengjast Seyðisfirði og Skaftfelli á einn eða annan hátt. Silvia Bächli & Eric Hattan bjuggu á Seyðisfirði í fjóra mánuði vorið 2008 og á meðan á dvöl þeirra stóð vann Silvia að einkasýningu sinni fyrir Feneyjartvíæringinn 2009 þar sem hún sýndi fyrir hönd Sviss; síðasta haust gerði Margrét H. Blöndal innsetninguna pollur – spegill inni í sýningarsalnum; Ragnar Kjartansson tók m.a. þátt í sýningunni Samkoma handan Norðanvindsins árið 2016; Roman Signer hefur heimsótt Seyðisfjörð reglulega og sýndi í Skaftfelli 2010.

 

Silvia Bächli & Eric Hattan (Nr. 62) trilla 2018 Upplag 22, árituð 40 x 50 cm Digital Print on enhanced mate paper Verð: 85.000 kr
Silvia Bächli & Eric Hattan
(Nr. 62) trilla, 2018
Upplag 22, árituð
40 x 50 cm
Digital Print on enhanced mate paper
Verð: 95.000 kr
Margrét H. Blöndal Án titls 2018 Upplag 20, árituð 21 x 28 cm Inkjet on bamboo rag Verð 45.000 kr.
Margrét H. Blöndal
Án titils, 2018
Upplag 20, árituð
21 x 28 cm
Inkjet á bambus pappír
Verð 47.500 kr.

 

Ragnar Kjartansson Þau ræddu ódauðleika sálarinnar, 2018 Upplag 20, árituð 29.5 x 21 cm Silkiþrykk Verð 65.000 kr.
Ragnar Kjartansson
Þau ræddu ódauðleika sálarinnar, 2018
Upplag 20, árituð
29.5 x 21 cm
Silkiþrykk
Verð 75.000 kr.
Roman Signer Seyðisfjörður, 2010 Upplag 22, árituð 30 x 45 cm Inkjet Verð 40.000 kr.
Roman Signer
Seyðisfjörður, 2010
Upplag 22, árituð
30 x 45 cm
Inkjet
Verð 41.000 kr.

Prentuð voru fjölfeldi í takmörkuðu upplagi fyrir Skaftfell, sem er selt hvert fyrir sig eða saman í möppu. Listamennirnir fá allir bestu og innilegustu þakkir fyrir þessa veglegu gjöf sem mun gera Skaftfelli kleift að safna fé til að styðja við viðamikla dagskrá, gestavinnustofur og fræðslu í tengslum við sýningarýmið.

[box type=“note“]Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við [email protected][/box]