Bátur, setning, þriðjudagur

Sýningin ‘Bátur, setning, þriðjudagur’ er afrakstur tveggja vikna dvöl myndlistarnema úr Listaháskóla Íslands á Seyðisfirði þar sem hópur nemenda á þriðja ári hafa unnið hörðum höndum undir leiðsögn Gunnhildar Hauksdóttur myndlistamanns. Gunnhildur dvaldi sjálf á Seyðisfirði árið 2001 ásamt samnemendum sínum í LHÍ þegar sambærileg vinnustofudvöl var haldinn í fyrsta sinn undir handleiðslu Björns Roth.

Mörg listamannanna eru að vinna með Seyðisfjörð sjálfan, söguna og landslagið, fundið efni af svæðinu, ljósmyndir og málverk af heimamönnum og fjöllum. Eftir sögustund Péturs Kristjánssonar vaknaði t.a.m. áhugi á fjarskiptasögu Seyðisfjarðar og morskóðun. Það stefnir í lifandi flutning við opnun sýningarinnar, eða klukkan 18, með nýstofnuðum Morskór sem flytur verkið Hæ, halló, bless í stjórn Gunnhildar Hauksdóttur.

Sýningin opnar 26. janúar kl. 17.00 og stendur til 5. febrúar. Opnunartímar: mánudagar, þriðjudagar, fimmtudagar, föstudagar frá 12-16.

Listafólkið sem tekur þátt eru þau Axel Gústavsson, Bjartur Elí Ragnarsson, Elín Elísabet Einarsdóttir, Gabriel Backman Waltersson, Hekla Kollmar, Íris Eva Ellenar-Magnúsdóttir, Ísabella Lilja J. Rebbeck, Ívar Ölmu Hlynsson, Katla Björk, Kata Jóhanness, Ráðhildur Ólafsdóttir, Saga Líf Sigþórdóttir og Tómas van Oosterhout