Home » 2003

Fogelvlug

Á gólfi sýningarsalsins liggja tvö stór kort, annað er landakort sem nær frá Rússlandi til Íran og hitt er fuglakort. Yfir kortin og mikinn hluta gólfsins liggur stórt net í felulitunum. Í horni salarins er pýramídi gerður úr bláu litarefni. Á veggjunum eru ljóðræn textabrot.

Þýski myndlistarmaðurinn Lothar Baumgarten er vel þekktur og alþjóðlega virtur sem listamaður. Hann lærði við listaakademíuna í Karlsruhe og tók svo framhaldsnám í Dusseldorf-akademíunni undir leiðsögn listamannsins Joseph Beuys. Hann hefur fjórum sinnum verið þátttakandi á Documenta-sýningunni og verið fulltrúi Vestur-Þýskalands á feneyjartvíæringnum. Hann hefur sýnt í mörgum helstu söfnum heims eins og Guggenheim-safninu, MOMA og Tate-galleríinu.