Framkvæmdir í Skaftfelli !

Nú standa yfir framkvæmdir í Bistrói Skaftfells sem miðar að því að ná löglegri lofthæð svo aftur megi töfra fram dýrindis máltíðir fyrir gesti og gangandi.

Framkvæmdum lýkur í byrjun mars en þær eru skrásettar af miklum ákafa Bjarna Þórs Sigurbjörnssonar og mun hann sýna myndir frá framkvæmdum hér á netinu á allra næstu dögum!