OPIÐ KALL: Gestavinnustofa Skaftfells 2026

Gestavinnustofan er fyrir listamenn sem starfa í mismunandi miðlum og hentar einstaklingum eða hópum með allt að þrem listamönnum.

Tímabil: janúar – júní 2026

Umsóknarfrestur: 31.maí 2025.

Skaftfell Listamiðstöð býður upp á alþjóðlega sjálfstýrða gestavinnustofu á Seyðisfirði. Afskekkt umhverfi veitir listamönnum tækifæri til að vinna í tiltölulegri einangrun á stað sem einnig er heimili alþjóðlegs samfélags starfandi listamanna. Gestavinnustofan býður upp á rými fyrir íhugun, sköpun og samvinnu og er tilvalið fyrir listrænar rannsóknir og tilraunir.

Nánari upplýsingar hér: https://skaftfell.is/is/self-funded-residency/