Listamannaspjall + tónleikar: Solveig Thoroddsen, Frederik Heidemann, Þórir Freyr Höskuldsson og Fjóla Gautadóttir.

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin á listamannaspjall og tónleika með gestalistamönnum Skaftfells í febrúar: Solveigu Thoroddsen, Frederik Heidemann, Þóri Frey Höskuldssyni og Fjólu Gautadóttur. Sunnudaginn 25. febrúar kl 16.00 í sýningarsal Skaftfells.
Þar fáum við að líta á og leggja við hlustir á það sem listamennirnir hafa unnið að undanfarnar vikur. Um er að ræða málverk, hljóðverk og rannsóknir. Viðburðurinn fer fram á ensku og kaffi og kleinur verða í boði. Klukkan 17.00 munum við ganga yfir í Seyðisfjarðarkirkju þar sem Frederik Heidemann mun flytja píanóverk eftir Colette Roper sem upprunalega voru gefin út af Dieter Roth Verlag. Öll velkomin.
____
Um listamennina:
Solveig Thoroddsen útskrifaðist úr meistaranámi frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur verið virkur listamaður síðan. Hún vinnur þvert á miðla og helstu viðfangsefni hennar eru samspil manns og náttúru. Ennfremur eru verk hennar samfélagsmiðuð með feminískum tilvísunum. Ásamt myndlist hennar fæst hún einnig við skrif og hefur gefið út tvær ljóðabækur. Um þessar mundir er hún að vinna að bók þar sem hún safnar og velur íslenskar þjóðsögur þar sem kvenpersónur eru söguhetjur og endurskrifar þær í nútíma frásagnarstíl. Bókin verður myndskreytt með verkum hennar en undanfarin ár hefur hún unnið með þetta þema.
Frederik Heidemann er listamaður sem vinnur með tónlist, gjörningalist og útvarp. Hann gerir samsett verk og vinnur með ólíka hluti, allt frá útvarps mixteipum til hringitóna. Hann leggur reglulega til efni fyrir Thelakeradio.com og Groupcrit.net og er einn hluti af tvíeykinu Yrdloop. Á meðan dvöl hans í Skaftfelli stendur mun hann rannsaka ósagða sögu tónlistar Dieter Roths ásamt útgáfu hans Dieter Roth Familienverlag.
Þórir Freyr Höskuldsson er mynd- og hljóð listamaður með BA gráðu frá ArtScience Interfaculty í Royal Academy of Art í Haag. Verkin hans taka oft á sig form gjörninga í innsetningum þar sem hann blandar saman hljóði, myndum og töluðu máli. Hann stofnaði ásamt öðrum, útvarpsstöðina Útvarp Súðarvogur.
Fjóla Gautadóttir er dansari, hljóðhönnuður, rithöfundur og plötusnúður. Hán hefur bakgrunn í bæði klassískum dansi og tónlist og lauk BA námi í dansi og kóreógrafíu frá HZT í Berlín árið 2019. Fjóla starfar sem hljóð hönnuður fyrir dans og gjörningalist í Berlín.
Í Skaftfelli munu þau Þórir og Fjóla vinna að útvarpsleikriti sem gerist í framtíðinni, um föður og dóttur sem æfa töfrasýningu þar sem þau búa í eyðimörkinni. Þau fylgja þannig hefð fyrir samfélagsútvarpi á Seyðisfirði og er ætlunin að halda vikulegan útvarpsþátt með brotum úr verkinu, hugleiðingum um úrvarpið sem miðil, með innkomu gesta, bæði á staðnum og í gegnum útvarpsbylgjur.