Home » 2013

(MIXTAPE) NOTES FROM THE MIDNIGHT MOUNTAIN – FAST DOWNLOAD

Opnun föstudaginn 6. júlí kl. 17.

Ting Cheng er búsett í London en á ættir sínar að rekja til Tæwan. Hugarfóstur Ting í myndlist byggja ekki á að endurgera raunverulegar minningar heldur skapa súrrealískar aðstæður þar sem áhorfandinn verður bæði móttakandi og þátttakandi.

Með því að tengja saman líkama og rými fangar Ting hversdagslega hluti og aðstæður í svipmynd sem virðist vera af öðrum heimi. Listakonan vonast til að vekja upp spurningar og efasemdir með því að stunda gáskafullar rannsóknir, gera tilraunir og skoða umhverfi okkar út frá nýju sjónarhorni.

Á Vesturveggnum mun Ting sýna ný verk sem eru unnin á Seyðisfirði og er “mixtape” á samtali milli hennar og fjallahringsins.

www.ting-cheng.com

Sýningin stendur til 22. júlí og  er hluti af sumarsýningarröð Skaftfells 2012 Reaction Intermediate.