Rithöfundalest(ur) á Austurlandi 2022

Rithöfundalest(ur) verður í Skaftfelli á Seyðisfirði föstudaginn 18. nóvember klukkan 19:00.

Skaftfell hlakkar til að bjóða þau Benný Sif Ísleifsdóttur, Jónas Reyni Gunnarsson, Smára Geirsson, Rangar Inga Aðalsteinsson og Jón Pálsson velkomin á föstudaginn. 

Rithöfundar verða á ferð um Austurland 17. – 20. nóvember að kynna verk sín venju samkvæmt. Að þessu sinni verður Rithöfundalestin alfarið austfirsk þar sem allir höfundar eiga rætur eða eru búsettir á Austurlandi. Kjarna lestarinnar mynda fjórmenningarnir: Benný Sif Ísleifsdóttir með skáldsöguna Gratíana sem er framhald Hansdætra; Jónas Reynir Gunnarsson með skáldsöguna Kákasus-gerillinn; Smári Geirsson með stórvirkið Sögu Fáskrúðsfjarðar; og Ragnar Ingi Aðalsteinsson með þrjú verk, Líkið er fundið – sögur af Jökuldal, kvæðasafn systkinanna frá Heiðarseli og bók um Skáld-Rósu.

Aðrir höfundar sem stíga um borð í lestina á mismunandi stöðum eru: Unnur Sveinsdóttir með barnabókina Skotti og sáttmálinn; Ásgeir Hvítaskáld með skáldsögu byggða á sönnum atburðum, Morðið í Naphorni; Jón Pálsson með glæpasöguna Skaðræði; Jón Knútur Ásmundsson með ljóðabókina Stím; Anna Karen Marinósdóttir með ljóðabókina Kannski verður allt í lagi; og Björn Ingvarsson með þýðingar á ljóðum Inúíta.

Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.

Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Forlagsins, Bílaleigu Akureyrar og Gistihússins á Egilsstöðum.

Allar upplýsingar um viðburðina er að finna á Facebook-síðum samtarfsaðilanna.

Upplestrarsamkomur Rithöfundalestarinnar 2022:

Fimmtudaginn 17. nóv. á Vopnafirði í Uss Bistro Kaupvangi kl. 20:30

Föstudaginn 18. nóv. í Skaftfelli Seyðisfirði kl. 19:00;

Laugardaginn 19. nóv. í Safnahúsinu í Neskaupstað kl. 14:00 og í Löngubúð á Djúpavogi kl. 20:00

Sunnudaginn 20.nóv. á Skriðuklaustri kl. 13:30 – viðburðinn verðu líka í streymi.