Velkomin Solveig Thoroddsen

Við bjóðum Solveigu Thoroddsen hjartanlega velkomna sem gestalistamann Skaftfells í febrúar. Solveig útskrifaðist úr meistaranámi frá Listaháskóla Íslands árið 2015 og hefur verið virkur listamaður síðan. Hún vinnur þvert á miðla og helstu viðfangsefni hennar eru samspil manns og náttúru. Ennfremur eru verk hennar samfélagsmiðuð með feminískum tilvísunum. Ásamt myndlist hennar fæst hún einnig við skrif og hefur gefið út tvær ljóðabækur. Um þessar mundir er hún að vinna að bók þar sem hún safnar og velur íslenskar þjóðsögur þar sem kvenpersónur eru söguhetjur og endurskrifar þær í nútíma frásagnarstíl. Bókin verður myndskreytt með verkum hennar en undanfarin ár hefur hún unnið með þetta þema.

http://stjarna111.com/