Ásgeir Emilsson eða Geiri eins og hann var kallaður var litríkur karakter og listamaður af Guðs náð. Hann hafði óbilandi sköpunarþörf og ber heimili hans þess sterk merki. Heimili Geira hefur verið haldið í nánast óbreyttu horfi frá andláti hans og þar má sjá hvernig hann lifði og við hvað hann fékkst í listsköpun sinni.
Geirahús er í eigu og umsjá Skaftfells. Endurbætur og varðveisla eru í fullum gangi og öll framlög til varðveislu heimilis og minningar Geira eru því vel þegin.
Til að skoða Geirahús hafið sambandi í Skaftfell í síma 472 1632 eða í tölvupósti á skaftfell@skaftfell.is. Athugið að ekki er víst að hægt sé að skoða húsið samstundis og því gott að hafa samband með fyrirvara.
Ekki er tekið á móti stærri hópum en 5 manns í einu. Aðgangseyrir er 500 kr. og rennur hann til uppbyggingar og varðveislu Geirahúss.
