BRAS: Arlene Tucker býður nemendum í ME upp á smiðjuna Túlkun er samtal

Translation is dialog eða Túlkun er samtal er verkefni þróað af myndlistarkonunni Arlene Tucker (TW/USA) sem býr og starfa í Joutsa, Finnlandi. Hún dvelur í september 2021 og mars 2022 sem gestalistamaður Skaftfells í boði Norrænu menningargáttarinnar.

Verkefnið Túlkun er samtal fjallar um samtal ungmenna á milli ólíkra staða þar sem þátttakendur munu notast við listrænar aðferðir til að nálgast listræna sköpun hvors annars. Nemendur fá að velja úr verkum erlendra ungmenna til að túlka með sínum eigin hætti og útfærslu. Margir ólíkir miðlar eru mögulegir við útfærsluna en í grunninn er nálgunin sú að ungmenni frá ólíkum heimshlutum nálgist hvort annað í gegnum sköpun.

Þátttakendur verkefnisins eru nemendur í Menntaskólanum á Egilsstöðum undir handleiðslu kennaranna Ólafar Bjarkar (Lóu) Bragadóttur og Heiðdísar Höllu Bjarnadóttur.

Nánar má sjá um verkefnið og fyrri þátttakendur á https://www.translationisdialogue.org/

Verkefnið er hluti af BRAS – menningarhátíð barna og ungmenna á Austurlandi