Dieter Roth Verlag: Tónlist, vinir og fjölskylda

Skaftfell kynnir útvarpsþátt sem Frederik Heidemann framleiddi á meðan hann dvaldi sem gestalistamaður í Skaftfelli:

Dieter Roth Verlag: Tónlist, vinir og fjölskylda

Í þessum útvarpsþætti er grafist fyrir um tónlistarverk listamannsins Dieter Roth og fólksins sem umkringdi hann á Íslandi og í Sviss. Þrátt fyrir að Roth sé vel rótgróin í sögu vestrænna listastofnana, eru tónlistarverk hans og útgáfa, „Dieter Roth Verlag“, minna þekktir kaflar í sögunni um listsköpun hans.

Í þessum klukkutíma þætti verða spiluð verk eftir listamenn eins og André Thomkins, Vera Roth, Hermann Nitsch, Colette Roper, Nam June Paik og fleiri.

Þátturinn er framleiddur af listamanninum Frederik Heidemann í gestavinnustofudvöl í Skaftfelli og verður útvarpað af Seyðisfjörður community radio á Seyðisfirði og The Lake Radio í Kaupmannahöfn í sameiningu.

Hlustaðu hér: https://soundcloud.com/seydisfjordur/dieter-roth-verlag-music-friends-and-family?si=ed4a04eaf9cb4e02b95a0c1ed813a467&utm_source=clipboard&utm_medium=text&utm_campaign=social_sharing