Rithöfundalest(ur) í Skaftfelli

November 28, 2026
8:00 pm
Sýningarsalur Skaftfells
frítt

Rithöfundalestin stoppar í Skaftfelli laugardaginn 28. nóvember kl. 20.00

Árleg ferð Rithöfundalestarinnar um Austurland verður farin dagana 26.–29. nóvember. Í ár verða eftirtaldir höfundar með í för: Vilborg Davíðsdóttir, Illugi Jökulsson, Benný Sif Ísleifsdóttir, Skúli Björn Gunnarsson, Bergrún Íris Sævarsdóttir. Í Skaftfelli bætast svo við Karólína Rós Ólafsdóttir og Tinna Guðmundsdóttir. Kynnir lestarinnar er Pétur Kristjánsson.

Lesendum á Austurlandi gefst hér einstakt tækifæri til að kynnast áhugaverðum jólabókum frá fyrstu hendi höfundanna sjálfra og taka þátt í jólabóka-samræðunni á Bókahátíðum um allt Austurland. Á hverjum viðkomustað verða kynntar bækur höfunda sem koma fljúgandi og hinna sem eru á staðnum, bækur sem tengjast Austurlandi á einn eða annan hátt. Hægt verður að kaupa bækur á staðnum og jafnvel fá áritun. Höfundar heimsækja einnig skóla og dvalarheimili aldraðra á yfirferð sinni og boðið upp á ritsmiðjur fyrir börn og fullorðna.

Rithöfundalestin er samstarfsverkefni Gunnarsstofnunar, Skaftfells, Menningarstofu Fjarðabyggðar, menningarsviðs Múlaþings og Menningar- og atvinnumálanefndar Vopnafjarðarhrepps.

Verkefnið nýtur stuðnings Uppbyggingarsjóðs Austurlands, Síldarvinnslunnar, Alcoa, Atlantsolíu, Brims, Nestaks, Samvinnufélags útgerðarmanna í Neskaupstað, Bílaleigu Akureyrar, Gistihússins á Egilsstöðum og bókaforlaganna Benedikts, Forlagsins, Bókabeitunnar og Orðs og lystar.

Verið öll velkomin! Ókeypis er inn á alla viðburði. Viðburðir fara fram á íslensku.

Nánari upplýsingar um viðburðina má finna á Facebook-síðum samstarfsaðilanna, á East.is og Skriduklaustur.is

Other events

November 21, 2026

Osey: Exhibition opening West Wall

November 23, 2026

Open call: Slóð – walking residency

November 28, 2026

Rithöfundalest(ur) í Skaftfelli