Skaftfell auglýsir eftir umsóknum fyrir dvöl í gestavinnustofum árið 2018. Umsóknarfrestur er 15. sept, 2017. Gestavinnustofunum er ætlað að stuðla að samfélagi listamanna og heimamanna, veita listamönnum rými til vaxtar og sköpunar í litlu samfélagi með óteljandi möguleikum og búa í haginn fyrir skapandi samræður milli listarinnar og hversdagsins.
Gestavinnustofurnar eru fyrst og fremst fyrir myndlistarmenn, en umsóknir frá listamönnum sem vinna á milli miðla eða í faggreinum er tengjast myndlist verða teknar til greina. Umsóknir frá hópum og fjölskyldum eru einnig vel séðar. Dvalartími er frá 1 upp í 6 mánuði, en mælst er til að listamenn dvelji í um tvo mánuði.
Listamenn stýra sjálfir sínu sköpunar- eða rannsóknarferli með stuðningi og ráðgjöf frá starfsfólki Skaftfells. Listamenn eru hvattir til að taka þátt í fræðslustarfi Skaftfells, með listamannaspjalli, kynningum eða vinnusmiðjum fyrir nemendur Seyðisfjarðarskóla eða íbúa.
![/www/wp content/uploads/2016/01/gi logo horizontal green srgb](https://skaftfell.is/wp-content/uploads/2016/01/gi_logo_horizontal_green_srgb-250x117.jpg)
[box size=“large“]Allar nánari upplýsingar og umsóknareyðublað má finna hér: https://skaftfell.is/residency-program/program-outline/?lang=en[/box]