Skaftfell, myndlistarmiðstöð Austurlands, auglýsir eftir einbeittum, sjálfstæðum og drífandi forstöðumann með brennandi áhuga á myndlist.
Skaftfell er ein af elstu og öflugustu stofnunum um nútímamyndlist á landsbyggðinni. Starfsemi Skaftfells er tileinkuð miðlun, viðgangi og framþróun myndlistar á Austurlandi og er þeim markmiðum framfylgt með öflugri og faglegri sýningardagskrá, rekstri gestavinnustofa og fræðslu fyrir börn og fullorðna í landsfjórðungnum.
Starfið felur í sér yfirumsjón með sýningardagskrá, almenna stjórnun, daglegan rekstur og ábyrgð á starfsemi miðstöðvarinnar. Nauðsynlegt er að nýr forstöðumaður hafi búsetu á Seyðisfirði.
Hæfniskröfur:
Helstu verkefni eru:
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum BHM.
Æskilegt er að forstöðumaður geti hafið störf 1. maí 2022.
Allar frekari upplýsingar veitir Hanna Christel Sigurkarlsdóttir,i forstöðumaður, í síma 472 1632 eða á netfanginu skaftfell@archive.skaftfell.is
Umsóknarfrestur er til og með 24. janúar 2022. Umsókn skal fylgja náms- og ferilskrá og stutt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir berist á netfangið admin@archive.skaftfell.is