Gerast félagi

Skaftfellshópurinn tekur á móti nýjum meðlimum! Skaftfellshópurinn er félag stofnað árið 1997 með það að markmiði að efla listir á Seyðisfirði og Austurlandi.

Upprunalegu meðlimir hópsins stofnuðu Skaftfell Listamiðstöð sem sjálfseignarstofnun árið 1998. Hópurinn hefur síðan stækkað og saman stendur af fjölda fólks sem ber hag Skaftfells fyrir brjósti. Í dag hefur Skaftfellshópurinn það hlutverk að vera bakland Skaftfells og standa vörð um starfsemi þessi. Það sem einkennir hópinn eru tengsl hans annars vegar við myndlistarheiminn og hins vegar við Seyðisfjörð. Hópurinn á tvo fulltrúa í stjórn Skaftfells auk tveggja aðalsmanna, þeirra hlutverk er að gæta þess að Skaftfell þróist og dafni í samræmi við upprunalega hugmyndafræði Skaftfells og í takt við alþjóðlega strauma og stefnur í listheiminum.

Allir sem bera hag Skaftfells fyrir brjósti eru hvattir til að gerast meðlimir í hópnum. Auk þess að leggja sitt af mörkum til að styðja við starfsemi Skaftfells fá hópmeðlimir einnig regluleg fréttabréf um starfsemina og fara á boðslista fyrir sýningar. Meðlimum hópsins bjóðast einnig sérkjör á völdu efni í verslun Skaftfells og er gefin kostur á að kaupa í forsölu allt efni sem Skaftfell gefur út eða framleiðir sé þess kostur.

Félagsgjöld eru rukkuð árlega, en valkvæð upphæð er 3500kr.-.
Ef þú hefur áhuga á að gerast meðlimur Skaftfellshópsins, endilega fylltu út upplýsingar hér að neðan eða hafðu samband við Celiu Harrison forstöðumann Skaftfells Listamiðstöðvar með því að senda tölvupóst á director@skaftfell.is fyrir frekari upplýsingar.
Name