Opnun: Geiri, opið hús

mars 7, 2026
Skaftfell Art Center, Austurvegur 42

Sýningin Geiri – Opið hús er opin rannsóknarstofa í Skaftfelli þar sem tekið verður á móti gestum og safnað gögnum og sögum af Geira. Mörkuð verður stefna um varðveislu Geirahúss og gert opið ákall eftir sögum og munum sem tengjast Geira og samhengi hans sem íslensks alþýðulistamanns.

Verið hjartanlega velkomin á opnun þar sem Gunnhildur Hauksdóttir mun kynna verkefnið.

Seyðfirski alþýðulistamaðurinn Ásgeir Jón Emilsson (1931–1999), eða Geiri eins og hann er alltaf kallaður, er sennilega best þekktur fyrir smáskúlptúra og ýmsa muni sem hann vann úr frákasti, smáhúsgögn sem helst minna á þjóðbúningasilfur, öskubakka, myndaramma og málverk. Hann er kannski minna þekktur sem ljósmyndari, sem er áhugaverður þáttur í verkum hans og opnar enn frekar á líf og sjónarhorn Geira. 

Það er mikill fjársjóður að hafa svo góða heildarmynd af þessum ástsæla listamanni. Húsið hans við Oddagötu er vel þekkt og dýrmætur en viðkvæmur minnisvarði um íslenskan alþýðulistamann – skreytt að innan sem utan litríkum málverkum af pinup-stúlkum, fossum og skipum. Húsinu hefur verið haldið að mestu í óbreyttri mynd síðan Geiri kvaddi þennan heim; vinnuaðstaða hans, efniviðurinn, lampinn hans og stækkunarglerið eru enn á sínum stað.

Nú er svo komið að enn er þörf á endurbótum á Geirahúsi og því blæs Skaftfell, í samvinnu við Tækniminjasafnið og Safnasafnið á Svalbarðseyri með stuðningi Safnaráðs, til átaks um arfleið hans. Verkin hans og munir úr húsinu verða færðir tímabundið í Skaftfell þar sem þeir verða skoðaðir og gerðir aðgengilegir, síðan skráðir og þeim vandlega pakkað til geymslu. Unnið er að áætlun um að laga húsið, færa munina aftur í sama horf og opna húsið aftur almenningi.

Hús alþýðulistamanna hafa skemmst og glatast í gegnum tíðina og fá standa heil á Íslandi. Hús Samúels Jónssonar í Selárdal og Nonnahús á Akureyri eru góð dæmi um slíka arfleifð sem hefur tekist að varðveita en önnur og sorglegri eru dæmi um hús sem hafa glatast eins og þeirra Óskars Magnússonar og Blómeyjar Stefánssonar sem þau reistu sjálf, fyrst í Blesugróf sem þau kölluðu Kastala, og síðar á Hellisheiði þar sem þau bjuggu og unnu að vefnaði, og svo hús Gunnþórunnar Sveinsdóttur á Sauðárkróki sem hún reisti sjálf og málaði hverja fjöl og rak þar verslun. Það hús brann en verk hennar eru mörg varðveitt í Listasafni ASÍ og Safnahúsinu á Sauðárkróki.

Mynd Scott Hardy

Aðrir viðburðir

mars 7, 2026

Opnun: Geiri, opið hús