10 Dýr – Pétur Kristjánsson

Liðnar sýningar
Vesturveggur (Bistró)

Skaftfell kynnir sýningu á nýjum verkum eftir Pétur Kristjánsson á Vesturveggi Skaftfells bistro.
Sem opnar samhliða List í ljósi, 14. febrúar kl. 18.00

Myndirnar hér, níu talsins, eru allar af sama „hlutnum“ séð frá mismunandi sjónarhornum.  Hreyfimyndin á skjánum er einnig af þessum sama hlut. Þegar við sjáum fyrirbæri úr fleirum sjónahornum er boðið upp á að endurhugsa viðhorf til hluta og aðstæðna!

Pétur þakkar Skaftfelli fyrir að bjóða sér og aðstoða sig við að sýna hér þessi verk. 

Pétur Kristjánsson (f. 1952) Lauk Búfræðiprófi frá Hólum í Hjaltadal, las þjóðfræði og lauk fil.kand. prófí við Háskólann í Lundi, Svíþjóð. Hann er sjálfmenntaður í myndlist, en starfaði með/hjá Dieter Roth á árunum 1991-1998 og var jafnframt forstöðumaður Tækniminjasafns Austurlands á árunum 1986-2019.  Pétur er prófessor og stofnmeðlimur í Dieter Roth Akademíunni. Hann hefur sýnt reglulega hér á landi og í Evrópu frá 1991.

moon.is. / @peturponk

Aðrar sýningar

Skaftfellsgalleríið
október 17, 2025

In terms of the show in the sense of the trace in a hint of a twist

Vesturveggur (Bistró)
október 17, 2025

The Dripping of Tap Sounds Like a Clock Ticking – Ni Lin