október 3, 2026

Dreymendur og draumgjafar

Væntanlegt
Skaftfellsgalleríið

Sýningarstjóri: Þórhildur Tinna Sigurðardóttir
Listamenn: Cecilia Fiona (DK, 1997), Kirstín Morthens (IS, 1992), Hayden Dunham (USA, 1988), Morehshin Allahyari (IR/USA, 1985) & Gerður Helgadóttir (IS, 1928 – 1975)
Sýningarstaðir: Þula Grandi 26. september – 7. nóvember & Skaftfell 3. október – 11. nóvember

Weaving Cosmologies: dreymendur og draumgjafar fjallar um leitina að merkingu á tímum þar sem hún virðist oft óljós eða brotakennd. Sýningin leiðir saman verk ólíkra kynslóða þar sem eldri verk og nýjar tilraunir mætast og skapa sameiginlegt rými fyrir hugmyndir um tilvist, trú og ímyndunarafl.

Með því að spegla aðferðir samtímalistamanna í dulspekihreyfingum á borð við guðspeki, gnóstík og nýalisma myndar sýningin tengingar á milli ólíkra heima. Sama þrá fyrir merkingu og tilgangi sem leiddi andlegu hreyfingar fortíðarinnar leiðir samtímalistafólk í dag. Þráin birtist í vinnuaðferðum þeirra sem flétta saman vísindaskáldskap, líkömnuðum nálgunum og trúarlegum heimsmyndunarkenningum. Verkin bjóða upp á mögulegar heimsmyndir, bæði innri og ytri, þar sem draumar, helgiathafnir og hugleiðingar um líf handan jarðarinnar verða leiðir til að nálgast samtímann á nýjan hátt.

Innblástur sýningarinnar má rekja til andlegra og dulrænna strauma sem urðu til fyrir rúmri öld, á tímum óvissu og yfirvofandi heimsstyrjaldaváar. Sú reynsla endurómar í samtímanum þar sem svipaðar áhyggjur gera vart við sig. Þessa strauma má líta á sem undanfara þeirrar andlegu áherslu sem hefur á ný orðið áberandi í samtímalist, þar sem listin hefur lengi verið vettvangur til að takast á við firringu og leið til að leita merkingar og fyllingar.

Sýningin verður í tveimur hlutum sem nálgast viðfangsefnið með ólíkum hætti. 27. septemper opnar annar hluti sýningarinnar í Þulu, Marshallhúsi, þar sem áhersla verður lögð á vandaða framsetningu fullunnina verka. Viku seinna, 3. október, opnar í Skaftfell, Seyðisfirði, tilraunakenndari og innhverfari hluti sýningarinnar þar sem ferli, tilraunir og helgiathafnir móta upplifunina. Báðir hlutar hennar bjóða gestum að staldra við og ímynda sér aðra mögulegar framtíðar sviðsmyndir, bæði innra með sér og í heiminum í kringum sig.

Útgáfa fylgir sýningunni en í henni komast verk sýningarinnar í samtal við úrval skapandi og listfræðilegra texta sem hafa haft áhrif á sköpunarferli listamannanna og þemu sýningarinnar. Ritstjóri útgáfunnar er Eva Lín Vilhjálmsdóttir og hönnun hennar er í höndum Hrefnu Sigurðardóttur.

Mynd: Ævarandi Frjóvgun (nærmynd), litarefni blandað út í lím úr kanínuskinni á striga, 350 x 190 cm, 2024. Birt með leyfi listamannsins og Andersen’s Contemporary. Ljósmynd: Malle Madsen.

Aðrar sýningar

Vesturveggur (Bistró)
apríl 10, 2026

Garðar Bachmann Þórðarson: Skaflar