
Hvað ef það gerðist aldrei er sýning á olíumálverkum eftir Heiðdísi Hólm.
Útgangspunktur verka hennar eru upplifanir og ímyndaðar minningar í Seyðisfirði. Innihald verkana sveiflast á milli léttúðugrar ýkju, myrkrar sjálfsskoðunar og skáldaðra frásagna. Þau endurspegla margbreytileika mannlegs ástands, áhrifa manns á náttúru, áhrifa náttúru á manninn og afleiðingar þeirra áhrifa.
Heiðdís Hólm lærði hjá Myndlistarskólanum á Akureyri og Glasgow School of Art. Nýlegar sýningar sem hún hefur tekið þátt í eru m.a. The House í IMT í London; Vona að ég kveiki ekki í í Listasafninu á Akureyri, The Goose That Ruined Everything hjá Sluice og Rúllandi Snjóbolti 16 hjá Ars Longa. Hún hefur tekið þátt í gjörningahátíðunum A! á Akureyri og Do Disturb í Palais de Tokyo í París.