
ethan allison folk (f. 1986, í Bandaríkjunum) er listamaður, rithöfundur og kvikmyndagerðarmaður búsettur í Berlín. Í verkum sínum fjallar ethan um nánd milli tegunda, vistfræði sjávar og hagkerfi sjávar á skáldlegan og fantasíukenndan hátt.
Í Skaftfelli er ethan að þróa draugasögu / sápuóperu / fjölskyldudrama um fiskeldi. Fjölradda verukór ómar frá AquAdvantage™ laxinum, fyrstu erfðabreyttu kjötvöru heims. Vampíru sjávarlýs, hálftaminn hreinni fiskur, og keðjuverkandi samband samlífis og sníkjudýra eru skoðuð sem ein af mörgum vanvirkum fjölskyldum sem lifa af og dafna, fá lánað og eyða, veltast um í eitraðri samveru á iðnvæddum bannsvæðum.
ethan byggir á bakgrunni sínum í verkfræði og þeirri reynslu að hafa unnið á bátum bæði atvinnu fiskiskipi í Alaska og á leitar -og björgunarflota í Miðjarðarhafi. Einnig byggir ethan á kynnum sínum af verkum Alexis Shotwell, Sunaura Taylor og Donnu Haraway sem ímynda sér nýjar leiðir fyrir skyldleika tegunda sem sprettur úr vistfræðilegri nýtingu, vöruvæðingu dýra og mengaðri flækju, sem staðfestir að “það er enginn fyrirfram eitraður, fyrirfram flæktur líkami til að endurheimta, aðeins skref áfram í átt að gagnkvæmri forsjá.”