
Oskar Gísli Petzet er þýskur íslenskur gjörninga og vídjólistamaður. Hann er fæddur og uppalinn í Þýskalandi af þýskum og íslenskum foreldrum og stundaði listnám bæði í Reykjavík, Brussel og Köln. Gjörningar sem inngrip eru kjarninn í verkum hans. Hann notar fjölbreyttar leiðir til þess að skapa samskipti við áhorfendur, eða ókunnuga á götunni, og blandar þeim inn í flóknar, marglaga samskipta tilraunir þar sem áhorfendur og viðbrögð þeirra verða oft hluti af næsta stigi verksins.
Í gestavinnustofu Skaftfells þróar hann verk þar sem hann skapar hreyfimyndir innblásnar af einstöku andrúmslofti vetrarins á Seyðisfirði. Þessar teiknimyndir verða sýndar á Seyðisfirði og íbúum boðið að sjá. Viðbrögð áhorfenda verða síðan hluti af næsta stigi í listræna ferlinu, sem verður framhalds sería teiknimynda osfrv. Endurteknar athafnir milli listamannsins, umhverfisins og áhorfenda er kjarni verkefnisins og gæti leitt til innsetningar eða kvikmyndar þar sem allt ferlið er skrásett.