
Tímabil: Janúar – Mars
Yann Tie er hljóðlistamaður og tónlistarmaður sem vinnur með langtíma hlustun og staðbundin hljóð. Verk hennar nálgast hljóð sem nærveru og rannsaka hvernig vistfræðilegar, jarðfræðilegar og menningarlegar aðstæður móta tengsl milli mannlegra og ómannlegra heima. Yann notar hlustun bæði sem rannsóknaraðferð og siðferðilega afstöðu í sinni vinnu.
Hún einblínir á umhverfishljóð og stemningu sem felur í sér upptökur á vettvangi, hljóð göngur, hljóðspuna með umhverfinu, hljóðinnsetningu, og hreyfimyndir sem stjórnast af hljóði. Yann leggur áherslu á sem minnstu íhlutun höfundar, og leyfir hljóði, efnislegum ferlum og aðstæðum í umhverfinu að móta verkið hverju sinni.
Vettvangsferðir hennar fela meðal annars í sér upptökur í jökul landslagi, norðlægum skóum, umhverfi helgisiða, regnskógum, eyðimörkum og landamærum. Til að mynda dvaldi hún lengi með Evenki hreindýra hirðum í Stóru Khingan fjöllum, tók upp hljóð helgiathafna í Indónesíu og suðvestur Kína og jarðfræðileg hljóð í Himalayafjöllum og á norðurslóðum.
Í gestavinnustofu Skaftfells einbeitir Yann Tie sér að virkri hlustun á Seyðisfirði og nærliggjandi landslagi. Í stað þess að skilgreina frásögnin fyrirfram, gerir hún tilraunir til þess að bregðast við hljóðum bæjarins, með því að hlusta á vatn, veður, dýralíf, mannlega hegðun sem og breytilega dagsbirtu og aðstæður sem móta daglegt líf. Með staðbundnum upptökum, hljóðgöngum, ljósmyndun og hljóðstýrðum hreyfimyndum kannar hún hvernig hljóð afhjúpar tengsl milli fólks, staðar og breytinga í umhverfinu.