Gestalistamenn Skaftfells

Með stuðningi frá Nordic Culture Point höfum við getað veitt fullan styrk til þriggja mánaða dvalar fyrir eitt listamannatvíeyki og einn einstakling:Thanks to support from Nordic Culture Point, in collaboration with Skaftfell, we’ve been able to fully fund a three-month residency for one artist duo and one individual artist:

Yvette Bathgate og Jake Shepherd (EE/UK) eru listamannatvíeyki með aðsetur í Eistlandi. Þau vinna samstarfsverkefni með áherslu á umhyggju og samfélagsleg gildi. Undanfarin sjö ár hafa þau starfað innan menntakerfisins, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu, listagallería og samfélagshópa í norðausturhluta Skotlands. Á Seyðisfirði munu þau vinna með samfélaginu að sameiginlegri skúlptúrsmiðju og skapa sýningu sem felur í sér raddir þessa samfélags, og tengja beint saman fræðslu- og sýningarhluta listamiðstöðvarinnar, með því að skapa samstarfsverk sem ávarpar þessi tengsl og þá umhyggju og næmni sem mótun þeirra hefur krafist.
https://yvette-jake.hotglue.me/
https://yvette-jake.hotglue.me

Kristina Stallvik (NO/US) er listamaður, sýningarstjóri og útgefandi. Hán vinnur á mörkum hinsegin vistfræði og hefur áhuga á því hvernig náttúru utan mannheimsins er miðlað í gegnum tækni og á að kanna tengsl sýningarstjórnar og ritstjórnar sem miðlunarform. Í Skaftfelli mun hán halda áfram að rannsaka öryggismyndavélar og „truflanir“ í 300 vefmyndavélum sem dreifðar eru um allt Ísland. Verkin skoða hvernig veður – þoka, aska, slydda, regn, hagl – hefur áhrif á linsuna og býr til „skáldskap“ sem verður aðeins til í ljósi myndavélarinnar, fremur en að vera raunveruleg heimild, og þannig er bæði frásagnargildið og hið vélræna sjónarhorn dregið í efa. https://kristinastallvik.com/ https://kristinastallvik.com/ https://kristinastallvik.com/

Við bjóðum einnig velkomna Lin Ni (TW/FI), sem hlaut styrk frá Skaftfelli listamiðstöð. Hún er margmiðlunarlistakona sem vinnur með vatn í sínum verkum. Hún laðast að dimmbláum lit norræns rökkurs, bragðinu af snjó og djúpsævi. Verk hennar hafa verið sýnd víða, m.a. í Haus Der Statistik, Kunstkraftwerk, Helmut Space, galleríi Herðubreiðar, Ateneum-listasafninu, HIAP Augusta galleríinu og Saari-miðstöðinni. Hún var tilnefnd til Chi-Po-Lin kvikmyndaverðlaunanna og New Taipei City í heimildamyndaflokki árið 2023. https://maidoutofice.com/ https://maidoutofice.com/ https://maidoutofice.com/

Deila þessum fréttum

Aðrar fréttir