janúar 18, 2026
Minningarorð um Björn Roth (1961-2026)
Skoða nánar

Skaftfell hefur lánað tímabundið sex verk eftir Geira, Ásgeir Jón Emilsson (1931-1999), á samsýningu í MetroArts í Brisbane, Ástralíu.
Sýningin ber titilinn A ship called she og er í umsjón Catherine or Kate, ástralskra listamanna sem voru gestalistamenn Skaftfells á síðasta ári. Að undanförnu hafa listamennirnir dvalið í gestavinnustofu á vegum MetroArts og er sýning afrakstur af þeirri vinnu. Sýningin stendur frá 9.-26. maí.