febrúar 8, 2026
Ný önn að hefjast – skráning hafin fyrir nýja meðlimi
Skoða nánar

Í dag verður borinn til grafar stórvinur og samstarfsmaður Skaftfells til áratuga, Guðmundur Oddur Magnússon (f. 5.6.1955 d. 3.1.2026).
Útför Godds verður gerð frá Fríkirkjunni í Reykjavík í dag, 9. febrúar kl. 13.00. Útförinni verður einnig streymt í Bistrói Skaftfells fyrir alla þá sem vilja koma saman til hinstu kveðju.
Fyrir þá sem eiga heim að sækja verður boðið til erfidrykkju í Kling & Bang í Reykjavík.
Það er með sorg í hjarta sem Skaftfellsliðar fyrr og nú kveðja þennan góða samfylgdarmann, hugur okkar er hjá fjölskyldu og ástvinum Godds á meðan við óskum honum góðrar ferðar inn í sumarlandi og þökkum fyrir okkur.