Listamannaspjall – Anna Vaivare

Miðvikudaginn, 21. apríl 2021, kl. 17:00 – 18:00 í Herðubreið.

„Byggingar, teiknimyndasögur og barnabækur – óhefðbundin leið til að verða listamaður“
Fyrsta listamannaspjall á árinu verður með núverandi gestalistamanni Skaftfells, Anna Vaivare, sem mun segja frá listaferli sínum sem hófst með arkitektanámi en færði sig yfir í mynd- og veggskreytingar og myndabækur og mun hún gefa okkur innsýn inn í verk sem hún er að vinna að um þessar mundir.
Í boði verður kaffi og kaka og eru allir velkomnir. Vinsamlegast notið grímur.

Anna Vaivare er frá Letlandi og vinnur fyrst og fremst með myndskreyti og annars konar myndasöguform. Hún hóf feril sinn sem arkitekt eftir að hafa lokið námi frá Riga Technical University Faculty of Architecture and Urban Planning. Eftir að hafa gefið út þó nokkrar myndasögur og myndskreytt fimm barnabækur settist hún á skólabekk við Art Academy of Latvia Printmaking department og útskrifaðist þaðan með meistaragráðu.  

Við dvöl sína í Skaftfelli mun Anna vinna að nýrri myndasöguséríu, gera tilraunir með mismunandi tækni við sjónræna framsetningu sögu og þróa sjónrænt tungumáli við miðlun ævisagna þ.m.t. margræðar tilfinningar. 

Anna mun dvelja í gestavinnustofu Skaftfells í apríl og maí, og hlaut til þess styrk frá Norrænu menningargáttinni (Nordic Culture Point, Nordic Baltic Mobility Programme).